Áhyggjur af ríkisskuldum Frakka: „Enginn frír hádegisverður“
Vextir af ríkislánum Frakklands eru komnir á sama stig og síðast í alþjóðlegu fjármálakreppunni. Katherina Reiche, efnahagsráðherra Þýskalands, segir Frakka vinna að fjárlögum til að draga úr hallanum.
Katherina Reiche, efnahagsráðherra Þýskalands, hvatti í dag önnur Evrópuríki til að gæta að heilbrigði ríkisfjármála sinna í ljósi vaxandi áhyggna af skuldum Frakklands. „Það er enginn frír hádegisverður,“ sagði hún.
Áhyggjur af opinberum útgjöldum í Frakklandi hafa á undanförnum vikum orðið til þess að vextir af ríkislánum hafa hækkað þar í landi upp í það sem þeir voru síðast í alþjóðlegu fjármálakreppunni.
Spurð um ríkisfjármál Frakklands sagði Reiche að Roland Lescure, fjármálaráðherra Frakklands, „ynni að því að semja fjárlög sem standast stjórnarskrá og taka mið af framtíðinni“.
Franska ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 sem gerir ráð fyrir niðurskurði útgjalda og skattahækkunum til að draga úr fjárlagahallanum.
Reiche lagði jafnframt áherslu á að opinberar skuldir væru „mjög mikilvægur mælikvarði á trausta stefnu í ríkis- og fjármálum“. Benti hún á að Þýskaland væri enn með hæstu lánshæfiseinkunn hjá helstu matsfyrirtækjum. „Því fleiri ríki í Evrópu sem eru …