30, hið minnsta, voru drepnir í sprengjuárás á tvær rútur í Kramatorsk-borg í Úkraínu í dag.
Borgin er við víglínuna í austurhluta Úkraínu.
Vadym Filashkin, héraðsstjóri Donetsk-héraðs, segir að 18 hafi særst í árásinni.
Hann sakar Rússa um að hafa ráðist á rúturnar með sprengjum, til þess að drepa sem flesta almenna borgara.
Zelensky segir að árásinni verði svarað
Volodymyr Zelensky, Úkraínuforseti, segir í færslu á Telegram að árásinni verði svarað.
Hann segir Rússa reyna að eyða öllu lífi og að heimurinn verði að bregðast við. Viðbrögðin þurfi að vera þau sem Rússar eigi skilið vegna þess mannfalls sem þeir hafi valdið.
Á myndum má sjá brenndar rútur og fórnarlömb árásarinnar á veginum.
Rússnesk yfirvöld hafa ekki tjáð sig um árásina.
Í gærmorgun voru 22 drepnir, þar af fimm börn, í árás á fimm hæða fjölbýlishús í bænum Pryluky, austan við Kyiv. Þrjú barnanna voru aðeins eins árs gömul.
Ed Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, sem fundaði með Zelensky í Kyiv á fimmtudag, sagði að árásin í Pryluky sýndi „illan ásetning og illa stefnu“ Pútíns. Miliband sagði að Bretland myndi standa með Úkraínu eins lengi og þurfa þætti.
Árásir hafa þegar aukist í Kyiv sem hefur alltaf gerst á þessum árstíma meðan á stríðinu hefur staðið. Tilgangurinn er að gera íbúum erfitt fyrir að hita hús sín þegar kólna fer í veðri.
Evrópusambandið ætlar að auka fjármuni til Úkraínu fyrir dróna og eldflaugar.