Erlendir ferðamenn sem heimsóttu baðlón í heimsókn sinni til landsins hafa fengið falskt jákvætt í skimun eftir sprengiefnum eða hættulegum efnum á Keflavíkurflugvelli. Ferðamaður sem var á leið um landið fyrir skömmu vakti máls á þessu í hóp á Facebook sem telur hátt í 500 þúsund meðlimi.
Talsverð umræða skapaðist um málið og sögðust fleiri hafa lent í því sama. Sama umræða hefur komið upp á fleiri samfélagsmiðlum, til að mynda Reddit.
Skimun eftir sprengiefnum (ETD-skimun) er aukaskimun sem farþegar eru valdir í handahófskennt, að lokinni öryggisleit og vegabréfaskoðun.
„Þegar þessi útskýring er gefin þykir hún trúverðug“
Framkvæmd sprengiefnaskimana á Keflavíkurflugvelli er á borði Aviör, flugverndarþjónustu Öryggismiðstöðvarinnar.
Sverrir Ingi Ólafsson framkvæmdastjóri segir í samtali við fréttastofu að jákvæðar niðurstöður slíkra prófa geti átt sér margar hversdagslegar skýringar. Af öryggisástæðum geti fyrirtækið þó ekki rætt um framkvæmd slíkra athugana.
Samkvæmt verklagi er lögreglan kölluð til ef farþegi fær jákvæða svörun í tvígang í sprengiefnaskimun.
Ómar Mehmet Annisius aðstoðaryfirlögegluþjónn á Suðurnesjum segir lögregluna kannast vel við mál sem tengjast baðlónsheimsóknum.
„Við erum með upplýsingaöflun og spyrjum sambærilegra spurninga og öryggisverðirnir, á hvaða ferðalagi fólk hafi verið og hvaða staði það hafi heimsótt fyrir brottför,“ segir Ómar.
„Og þessi útskýring er gefin, að ferðamaðurinn hafi heimsótt baðlón fyrir heimför, þá þykir hún trúverðug og þá er verkefninu lokið af okkar hálfu.“