Þetta herma heimildir fréttastofu en þau eru þó enn góðir vinir. Samband þeirra varð opinbert í apríl á þessu ári og höfðu þau verið vinir í dágóða stund fyrir.
Kolfreyja Sól er fædd árið 2000, skaust upp á stjörnuhimininn snemma árs 2025 og hefur vakið mikla athygli í tónlistarbransanum. Á stuttum tíma hefur hún sent frá sér mörg vinsæl lög og má þar nefna Stoppa tímann, Týnda kynslóðin og Ljósin kvikna ásamt Aroni Can. Hún gaf nýverið út plötuna 1867 og Flóni óskaði henni til hamingju með meistaraverkið í Instagram-hringrás sinni.
Flóni er fæddur árið 1998 og hefur verið vinsæll tónlistarmaður hérlendis síðastliðinn áratug. Hann hefur gefið út þrjár breiðskífur og fjölda smella á borð við Leika, Partý og OMG.