Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
Vaxtabótaauki sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra lagði til skipti sköpum við að leysa úr hnútnum á milli VR og Samtaka atvinnulífsins.
Kjarasamningar milli Samtaka atvinnulífsins og VR halda. Þetta var tilkynnt eina mínútu yfir fjögur, eða mínútu eftir að frestur til þess að rifta samningum rann út.
Á vef RÚV er haft eftir Bjarna Benediktssyni að samkomulag hefði tekist um tiltekin grundvallaratriði en þau hafa ekki verið kunngjörð þegar þetta er skrifað.
Mikið hefur gengið á í samningaviðræðunum en vitað er að eitt af því sem rætt var um var tímabundinn vaxtabótaauki. Var það rætt á fundi forsætisráðherra.
Varaði við forsendubresti í ágúst
Halla Gunnarsdóttir formaður VR tilkynnti um miðbik ágústs að allt stefndi í að forsendur kjarasamninganna væru brostnar í ljósi þess að verðbólgumarkmið héldu ekki.
Halla vakti athygli á þessu ásamt fleiri stéttarfélögum í aðsendri grein og áréttaði að þessu yrði ekki haldið áfram nema atvinnulífið kæmi til móts við launþega með einhverjum hætti.
Í viðtali við Heimildina 10. ágúst síðastliðinn …