Sérfræðingar á vegum bæði Hafrannsóknastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar veittu jákvæðar umsagnir um umsókn rannsóknarfélagsins Rastar um tilraunina í fyrra. Töldu þeir rannsóknina hafa mikið vísindalegt gildi og að hún væri ekki líklegt til þess að hafa skaðleg áhrif á umhverfi og lífríki fjarðarins.
Hugmyndin mætti þó andstöðu Kjósarhrepps, annars sveitafélagsins við Hvalfjörð, og sumra hagsmunaaðila þar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hafnaði umsókn Rastar um rannsóknarleyfi í maí í fyrra á þeim forsendum að ekki væri til neinn lagarammi um rannsóknir af því tagi sem Röst vildi stunda í Hvalfirði.
Nú hefur utanríkisráðuneytið vent kvæði sínu í kross og veitt Röst leyfi til þess að gera tilraunina í hast. Mbl.is sagði fyrst frá því í dag. Birkir Bárðason, forstöðumaður Rastar, segir við Vísi að tilraunin hefjist á næstu dögum. Nákvæm tímasetning ráðist af veðri og vindum eftir að undirbúningi ljúki.
Þrepaskipta tilrauninni og síðasta þrepið háð frekara samþykki
Tilraunin felur það í sér að allt að 170 þúsund lítrum af 4,5 prósent basalausn verður veitt í sjóinn. Tilgangurinn er að kanna hvort raunhæft sé að auka svonefnda náttúrulega basavirkni sjávar en þannig væri hægt að auka kolefnisupptöku hafsins án þess að það leiddi til frekari súrnunar þess.
Reynist aðferðin fýsileg gæti hún nýst sem tól þess að koma böndum á hnattræna hlýnun sem stórfelld losun mannkyninsins á gróðurhúsalofttegundum veldur.
Birkir segir að rannsóknin sé eins og sú sem stóð til að gera í fyrra.
„Það sem hefur breyst er að við förum hægar af stað en þá var lagt upp með, líka til þess að það sé góð sátt um það sem við erum að gera,“ segir hann.
Þannig tilraunin þrepaskipt. Fyrst verður basalausninni veitt út í sjóinn í fjórar til sex klukkustundir og staðan svo metin. Gangi allt að óskum verði svo losað í hálfan til heilan sólarhring. Í síðasta áfanganum hefur Röst leyfi til að losa í 96 tíma en það er þó háð samþykki utanríkisráðuneytisins.
Birkir segist þó eiga von á að síðasti áfanginn standi skemur.
„Við teljum okkur geta náð okkar markmiðum á talsvert styttri tíma.“