Landsréttur kvað upp dóm þess efnis klukkan 15 á bak við luktar dyr. Dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu.
Margrét Halla var dæmd í 16 ára fangelsi í héraði í desember í fyrra fyrir að hafa banað föður sínum og fyrir stórfellda og sérstaklega hættulega líkamsárás gegn móður sinni. Ekki þótti sannað að Margrét hefði haft ásetning að ráða móður sína af dögum og var hún því ekki sakfelld fyrir tilraun til manndráps þegar hún gerði atlögu að foreldrum sínum á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ þann 11. apríl 2025.
Dómur Héraðsdóms Reykjaness er reifaður ítarlega í fréttinni hér að neðan:
Talsverða athygli vakti á sínum tíma þegar héraðsdómur vísaði kröfu hálfbróður Margrétar Höllu, um að hún yrði gerð arflaus eftir föður þeirra, frá dómi á þeim grundvelli að slík krafa þyrfti að koma frá ákæruvaldinu.
Þinghald var lokað í málinu, bæði fyrir héraðsdómi og í Landsrétti, en heimildir Vísis herma að Ríkissaksóknari hafi krafist þess í Landsrétti að refsing Margrétar yrði ekki eingöngu staðfest heldur þyngd úr sextán ára fangelsi í sautján ár. Meðal þess sem saksóknari taldi til refsiþyngingar var ofbeldi Margrétar gegn öldruðum foreldrum sínum yfir lengri tíma.