Yfirvöld í Kenía hafa staðfest fyrsta dauðsfallið vegna ebólu-smits. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin staðfestir að tilfellið sé það fyrsta sem greinist af Bundibugyo-afbrigði ebólu í Kenía.
Kenískur ríkisborgari sem hafði verið búsettur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í sjö ár, er talinn hafa smitast af afbrigðinu í Kongó.
Maðurinn ferðaðist landleiðina frá Kongó til Kampala í Úganda 2. október og flaug þaðan til Naíróbí, höfuðborgar Keníu, daginn eftir. Hann var fluttur á sjúkrahús skömmu eftir komuna og settur í einangrun. Hann lést 5. október.
Hátt í þrjátíu í sóttkví
Hátt í þrjátíu manns, fjölskyldumeðlimir hins látna og heilbrigðisstarfsfólk, hafa nú verið sett í sóttkví. Yfirvöld leita auk þess að farþegum og áhafnarmeðlimum sem voru með manninum í flugi frá Kampala til Naíróbí.
Yfir 4.000 manns hafa dáið í ebólufaraldrinum sem geisað hefur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó síðan í maí og rúmlega 8.300 smit hafa verið staðfest í sjö héruðum landsins.
Þetta er 17. og langskæðasti ebólufaraldurinn sem gengið hefur yfir Kongó.
Fjallað var um ebólufaraldurinn í Speglinum í vikunni.