Landsréttur kvað upp dóm þess efnis klukkan 15 en hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir. Í héraði var Stefán sömuleiðis dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar og greiðslu 200,7 milljóna króna.
Í ákæru var Stefáni gefið að sök að hafa ekki staðið í skilum á opinberum gjöldum sem haldið var eftir af launum starfsmanna hjá Steik frá 2020 til 2022, en þau hljóðuðu upp á samtals 32,7 milljónir króna. Hjá Gourmet var hann sagður hafa vanrækt skil á opinberum gjöldum upp á 68,3 milljónir króna. Alls námu skattsvikin því 101 milljón króna.