Eigendur fjögurra íbúða í fjölbýlishúsi við Vesturgötu í miðborg Reykjavíkur hafa lagt fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar byggingarfulltrúa um að leyfi til breytinga í kjallara og á 1. hæð hússins. Eru umræddar framkvæmdir tilkomnar vegna þess að til stendur að opna þar veitingahús í stað kaffihússins Café Rosenberg, en þrátt fyrir að á kaffihúsinu hafi verið töluvert um tónleikahald segja eigendurnir að með tilkomu veitingahússins muni ónæði og önnur óþægindi aukast.
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður