Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. Rektor MR segir atburðinn varpa skugga á skólasamfélagið í heild.
Kjaftshögg, ölvun og hráki á kappleik
Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, segir fréttir af knattspyrnuleik nemenda MR og Verslunarskóla Íslands sem fram fór á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi í gærkvöld mikil vonbrigði.
„Hegðun sem þar átti sér stað fór langt út fyrir þau mörk sem hægt er að sætta sig við og átti ekkert skylt við þá virðingu, íþróttamennsku og ábyrgð sem við væntum af nemendum okkar,“ segir í pósti sem Sólveig sendi á foreldra og forráðamenn í dag.
Mikill hiti var á leiknum og þurfti lögregla að hafa afskipti af nemendum. Kjaftshögg, ölvun og hráki eru meðal þeirra orða sem komu fram í dagbók lögreglu. Einn fékk flösku í höfuðið og var blysi kastað sem hæfðu nærstadda. Þegar mest var voru átta lögreglumenn á staðnum til þess að stilla til friðar.
Leikurinn er hluti af árlegri MR-VÍ viku skólanna þar sem keppt er í hinum ýmsu keppnisgreinum.
Viðburðum ýmist frestað eða þeir felldir niður
„Við lítum málið afar alvarlegum augum. Ofbeldi, ógnandi framkoma og skrílslæti verða ekki liðin undir neinum kringumstæðum. Þeir sem tóku þátt í slíkri hegðun þurfa að axla ábyrgð á gjörðum sínum og gera sér grein fyrir þeim afleiðingum sem háttsemin hefur fyrir aðra nemendur, skólasamfélagið og orðspor skólanna,“ segir Sólveig.
Skólayfirvöld treysti sér ekki til að standa fyrir frekari viðburðum með takmörkuðu eftirliti í ljósi aðstæðna.
Keppni í ýmsum þrautum sem átti að fara fram í Hljómskálagarðinum í dag var aflýst og hefur ræðukeppni sem átti að fara fram í Verslunarskólanum á morgun, föstudag, frestast til sunnudags.
„Við væntum þess að allir nemendur sýni yfirvegun, virðingu og ábyrgð í framhaldinu svo unnt verði að endurbyggja það traust sem atburðir gærkvöldsins hafa grafið undan.“
Sólveig segir aukin drykkja ungmenna áhyggjuefni. Slíkar skemmtanir, þar sem áfengi er haft um hönd, verði undantekningarlaust tilkynntar til lögreglu.
„Við væntum þess að allir nemendur sýni yfirvegun, virðingu og ábyrgð í framhaldinu svo unnt verði að endurbyggja það traust sem atburðir gærkvöldsins hafa grafið undan.“