„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir

„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir

„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir

„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, í Facebook-færslu sem hann birti í kvöld í tilefni þess að Samtök atvinnulífsins og VR náðu samkomulagi í kjaradeilu sinni.

Síðar um daginn boðaði ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins aðgerðir sem ættu að styðja við samningana.

„Miðað við þá niðurstöðu sem kynnt hefur verið er það alls ekki svo. Eftir svona fjölmiðlasirkus er mikilvægt að sannleikurinn liggi fyrir,“ bætir hann við.

Starfsgreinasamband Íslands (SGS), Efling og Samiðn (saman kallað Breiðfylkingin) skrifuðu undir samkomulag við Samtök atvinnulífsins (SA) þriðjudagskvöldið 6. október. Vilhjálmur tekur fram að samkomulagið hafi tryggt að allar umsamdar launahækkanir skiluðu sér að fullu og stytt samningstímann um einn mánuð, þannig að samningarnir rynnu út 31. desember 2027.

„Formaður VR sagði að það sem Breiðfylkingin skrifaði undir væri ekki nóg fyrir hennar félagsfólk. VR og fagfélögin höfðu enda lagt fram margar kröfur á hendur SA,“ bætir Vilhjálmur við.

Hann rifjar þá upp það sem hafi staðið til boða. SA hafi sent SGS tilboð um að samningarnir styttust um tvo mánuði ef tólf mánaða verðbólga yrði yfir 4,3 prósent í október 2027. „Eftir minni bestu vitund stóð VR og fagfélögunum þessi leið einnig til boða í byrjun vikunnar,“ skrifar Vilhjálmur.

Þessu tilboði VR hafi Breiðfylkingin hafnað þar sem henni hafi fundist metnaðarlaust að miða við svo háa verðbólgu eftir heilt ár. Þau hafi verið tilbúin að miða við að tólf mánaða verðbólga yrði að hámarki 3,9 prósent, en því höfnuðu SA.

Því hafi verið samið um að stytta samningana um einn mánuð án þessa skilyrðis. Mikilvægt sé að félagsfólk SGS, Eflingar og Samiðnar átti sig á þessum mun:

„Okkar stytting er tryggð, óháð því hver verðbólgan verður í október á næsta ári.“

Vilhjálmur segir að nú hafi formaður VR skrifað undir samkomulag þar sem tveggja mánaða stytting sé háð verðbólguskilyrðum, með tveimur viðmiðum í október á næsta ári: 4,3 prósenta tólf mánaða verðbólgu og 3,8 prósenta sex mánaða verðbólgu.

„Miðað við verðbólguspá ASÍ, eins og ég les hana, mun þetta ákvæði ekki einu sinni skila félagsfólki hennar neinni styttingu samninganna. Það segir meira en mörg orð,“ segir Vilhjálmur.

„[M]iðað við það sem fram hefur komið hefur ekkert annað fengist umfram það sem við höfðum þegar samið um. Munurinn liggur í mögulegri tveggja mánaða styttingu sem er háð verðbólguskilyrðum, á meðan við tryggðum eins mánaðar styttingu án slíkra skilyrða,“ segir Vilhjálmur.

Hann kveðst seint munu skilja allar yfirlýsingarnar um verkföll og að ekki yrði gefið tommu eftir. „Jafnvel voru mögulegar uppsagnir samninga opinberu félaganna dregnar inn í umræðuna. Þessu hefur fylgt fjölmiðlasirkus frá klukkan átta í morgun — og allt í beinni útsendingu!“

Niðurstaðan sé svo nokkurn veginn tilboð sem hafi legið fyrir síðasta mánudag og staðið þeim til boða, og sem Breiðfylkingin hafi hafnað.

Að hans mati hefði verið hægt að ganga frá þessari niðurstöðu strax á þriðjudag, enda hafi aðkoma ríkisstjórnarinnar vegna vaxtabóta þá þegar verið komin fram.

„Félagsfólk á rétt á skýru svari um hvað breyttist frá mánudegi til fimmtudags og hvað fékkst fram með öllum þessum látum.“

Hann óskar þó félagsfólki VR og fagfélaganna til hamingju með að samningar þeirra haldi og umsamdar launahækkanir skili sér.

„Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið,“ skrifar hann.

Aðalmálið sé verkefni sem SGS, Efling og Samiðn hafi lagt höfuðáherslu á, sem sé að ná niður verðbólgu og vöxtum.

„Það er það sem mun létta undir með launafólki og heimilunum í landinu. Til þess verða stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnulífið áfram að axla sína ábyrgð með okkur og fylgja því eftir sem lagt hefur verið fram,“ skrifar hann og bætir við að lokum:

„Og já, ég er sannfærður um að okkur muni takast þetta ef allir standa við sitt“

#fagna #leikriti #lokið #þessu #því


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262945878d/-eg-fagna-thvi-ad-thessu-leikriti-se-lokid-

📰 Aðrar fréttir

Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 0
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 0
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 0
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 3
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 2
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 2
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 3
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 3
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 4
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær g...
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað Ág­úst Bjarni Garð­ars­son hef­ur keypt bæj­ar­blað­ið Fjarð­ar­frétt­ir í gegn­um ráð­gj...
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum Skuld­sett heim­ili fá sam­tals 1,3 millj­arða króna í ein­skiptis­vaxta­bæt­ur verði...
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
📅 08.10.2026 👁️ 4
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um 16 ára fangelsi yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra...
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en málinu er ekki lýst frekar. Í sama hverfi var tilkynnt um innbrot og einnig tilkynnt um...
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
📅 08.10.2026 👁️ 4
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
Special correspondent Lucy Manning explains why the Hight Court has ruled that search warrants used to search Mr Mountbatten-Windsor's home were unlaw...
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
📅 08.10.2026 👁️ 3
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, er komin á fætur og farin að ganga um sjúkrasto...
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
📅 08.10.2026 👁️ 3
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
Eigendur fjögurra íbúða í fjölbýlishúsi við Vesturgötu í miðborg Reykjavíkur hafa lagt fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna...
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
Frambjóðandi Demókrataflokksins í Arizóna fylki greinir frá því að henni hafi verið nauðgað í kosningabaráttu. Ókunnur maður rotaði hana og byrjaði sí...
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
📅 08.10.2026 👁️ 4
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
Fjölmiðlar hafa í dag greint frá skemmdaverkum á bílum í Vesturbæ Reykjavíkur en hakakross var rispaður í hurð eins bílsins. Þrír bílar voru rispaðir ...
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjög...
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
„Við eigum eftir að senda tölvupóst á nemendur og forráðamenn,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor MR, í samtali við Vísi og bætir við að nemen...
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
📅 08.10.2026 👁️ 3
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
Umfangsmikil bilun er í norska farsímakerfinu. Vegna bilunarinnar getur reynst erfitt fyrir almenning að ná sambandi við neyðarnúmer viðbragðsaðila.Bi...
Samningar náðust á síðustu mínútu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Samningar náðust á síðustu mínútu
„Það er tvennt sem kemur til til þess að ég geti gengið sátt frá borði,“ sagði Halla Gunnarsdóttir formaður VR stuttu eftir að tilkynnt var að kjarasa...
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
📅 08.10.2026 👁️ 4
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna Vaxta­bóta­auki sem Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra lagði til skipti sköp­um við að...
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
Eins og kunnugt er var tilkynnt í morgun að ljóðskáldið Anne Carson hefði hlotið nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Hún er frá Kanada en hefur undanfarin ...
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
Ónefndur veitingastaður á Íslandi gerðist sekur um mismunum á grundvelli þjóðernisuppruna síðsta sumar þegar pari frá Ísrael var neitað um þjónustu. Þ...
Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti
📅 08.10.2026 👁️ 4
Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti
Landsréttur staðfesti í dag 16 ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf sem banaði föður sínum á heimili fjölskyldunnar við Súlunes á Arnarnes...
Sorgleg staðreynd um systurnar þrjár sem drukknuðu við strönd Brighton
📅 08.10.2026 👁️ 4
Sorgleg staðreynd um systurnar þrjár sem drukknuðu við strönd Brighton
Þrjár systur sem fundust látnar í sjónum við Brighton á Englandi í maí sviptu sig lífi, samkvæmt niðurstöðu réttarrannsóknar sem lauk í dag, 8. októbe...
Spjallið með Frosta Logasyni | Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt
Alaska og Flóni hætt saman - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Alaska og Flóni hætt saman - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu en þau eru þó enn góðir vinir. Samband þeirra varð opinbert í apríl á þessu ári og höfðu þau verið vinir í dágóða st...
Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía
📅 08.10.2026 👁️ 4
Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía
Yfirvöld í Kenía hafa staðfest fyrsta dauðsfallið vegna ebólu-smits. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin staðfestir að tilfellið sé það fyrsta sem greinist af...
Loftslagstilraun hefst í Hval­firði á næstu dögum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
Loftslagstilraun hefst í Hval­firði á næstu dögum - Vísir
Sérfræðingar á vegum bæði Hafrannsóknastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar veittu jákvæðar umsagnir um umsókn rannsóknarfélagsins Rastar um tilrau...
Margrét Löf í sex­tán ára fangelsi en heldur föðurarfinum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Margrét Löf í sex­tán ára fangelsi en heldur föðurarfinum - Vísir
Landsréttur kvað upp dóm þess efnis klukkan 15 á bak við luktar dyr. Dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo s...
Saga Sig og Villi nagl­bítur eignuðust dóttur - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Saga Sig og Villi nagl­bítur eignuðust dóttur - Vísir
„Dóttir okkar Sögu mætti yfirveguð og fullkomin þ. 27.09.26 kl. 12:34,“ skrifar Villi í færslu á samfélagsmiðlum og birtir nokkrar myndir af dótturinn...
Veitinga­maður sektaður um tvö hundruð milljónir - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Veitinga­maður sektaður um tvö hundruð milljónir - Vísir
Landsréttur kvað upp dóm þess efnis klukkan 15 en hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir. Í héraði var Stefán sömuleiðis...
Stofna samtök sveitarfélaga í landbúnaði
📅 08.10.2026 👁️ 4
Stofna samtök sveitarfélaga í landbúnaði
Mikil fundahöld eru á vegum sveitarfélaga þessa dagana í Reykjavík. Aðalfundur Jöfnunarsjóðs var í gær og í dag hefst árleg fjármálaráðstefna í Vör, f...
Guðmundur Felix fékk slæmar fréttir: „Þetta verður flóknara en það leit út fyrir í upphafi“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Guðmundur Felix fékk slæmar fréttir: „Þetta verður flóknara en það leit út fyrir í upphafi“
Guðmundur Felix Grétarsson segir að það sé flóknara en það hafi litið út fyrir í upphafi að losna við krabbameinið úr nefinu. Fékk hann þær slæmu frét...
Barnastjarnan sér eftir brjóstaminnkuninni þegar hún var 15 ára
📅 08.10.2026 👁️ 3
Barnastjarnan sér eftir brjóstaminnkuninni þegar hún var 15 ára
Leikferill barnastjörnunnar Raven-Symoné hófst í The Cosby Show og hún varð síðar fræg hjá Disney Channel með eigin sjónvarpsþætti, That's So Raven, s...
„Þegar menn ná ekki saman þýðir það ekki að menn hafi engu spilað út“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Þegar menn ná ekki saman þýðir það ekki að menn hafi engu spilað út“
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki rétt að samtökin hafi ekki komið til móts við VR, LÍV og fagfélögin í kjaraviðræðum líkt og formaðu...
Two men arrested on suspicion of trespass at RAF base
📅 08.10.2026 👁️ 4
Two men arrested on suspicion of trespass at RAF base
Police say the suspects are Latvian nationals aged 36 and 32.
RAF Molesworth: Men arrested on suspicion of trespass at US base
📅 08.10.2026 👁️ 4
RAF Molesworth: Men arrested on suspicion of trespass at US base
Police say they apprehended two Latvian men at about 02:00 BST while they were inside the perimeter.
Áhyggjur af ríkisskuldum Frakka: „Enginn frír hádegisverður“
📅 08.10.2026 👁️ 3
Áhyggjur af ríkisskuldum Frakka: „Enginn frír hádegisverður“
Áhyggjur af ríkisskuldum Frakka: „Enginn frír hádegisverður“ Vext­ir af rík­is­lán­um Frakk­lands eru komn­ir á sama stig og síð­ast í al­þjóð­legu fj...
Áform Bandaríkjanna, geimkapphlaup og loftslagsmál á dagskrá Hringborðs norðurslóða
📅 08.10.2026 👁️ 3
Áform Bandaríkjanna, geimkapphlaup og loftslagsmál á dagskrá Hringborðs norðurslóða
Hringborð norðurslóða, þing Arctic circle hefst í Hörpu í dag. Þar verða um 200 málstofur og um 700 ræðumenn. Meðal annars verður fjallað um áform Ban...