Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfarið fannst svo gat á girðingu herstöðvarinnar en mennirnir voru ekki gómaðir fyrr en klukkan tvö um nóttina, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.
Fyrst voru þeir sakaðir um að vera á bannsvæði og um skemmdarverk á girðingunni. Seinna meir voru þeir einnig sakaðir um að brjóta gegn þjóðaröryggislögum Bretlands. Rannsókn málsins er leidd af hryðjuverkalögreglu Bretlands.
RAF Molesworth-herstöðin hýsir meðal annars sérstaka upplýsingamiðstöð NATO og leyniþjónustudeild Bandaríkjanna fyrir Evrópu og Afríku, eins og fram kemur í frétt Sky News. Enga flugvelli má finna á herstöðinni, þó þóttn tilheyri flughernum.
Sky segir einnig að húsleit hafi verið framkvæmd á minnst tveimur stöðum í Peterborough, sem er bær skammt norður af herstöðinni.
Rannsókn málsins er enn á frumstigi.
Stutt er síðan bresk yfirvöld voru með mikinn viðbúnað við aðra herstöð breska flughersins, sem hýsti einnig bandarískar herþotur. Sjö menn hafa verið handteknir vegna þess máls en þeim hefur öllum verið sleppt gegn tryggingu.
Enn er mjög lítið vitað um það mál og í raun hvað mennirnir eru sakaðir um. Fimm menn voru handteknir eftir að þeir fundust við þrjá sendiferðabíla nærri herstöðinni. Engar sprengjur fundust í bílunum og hefur lítið sem ekkert verið gefið upp um málið af yfirvöldum, annað en að Bretar og Bandaríkjamenn telja að klerkastjórnin í Íran tengist því á einhvern hátt.
Bandarískar herþotur sem voru á herstöðinni voru notaðar til árása í Íran fyrr á árinu. Þær hafa nú verið fluttar aftur til Bandaríkjanna.