Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækkunin hefur verið lengi í bígerð en nú er gert ráð fyrir að sveitarfélagið leiði framkvæmdirnar.
„Viljayfirlýsingin snýr að því að það verði Ísafjarðarbær sem muni leiða hönnun og byggingu hússins en að það verði ekki á höndum ríkisins í gegnum framkvæmdasýslu ríkisins,“ segir Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Í apríl 2024 undirrituðu ráðuneyti og sveitarfélag samning um slíka viðbyggingu. Síðan þá hafa verið gerðar verkfræðilegar úttektir á mögulegri staðsetningu og núverandi aðstöðu. „Að öðru leyti hefur málið ekki þokast,“ bætir Gylfi við.
Aðspurður segir Gylfi sveitarfélagið að vissu leyti betur í stakk búið að fylgja verkefninu úr höfn. „Ein af hugmyndunum að þessari viljayfirlýsingu og að færa þetta heim í hérað er að sveitarfélagið hafi betri tilfinningu fyrir því hvernig staðhættir eru. Hægt er að samræma vilja skólans og skipulagsmál ýmiss konar og að láta verkið falla betur að aðstæðum í byggingariðnaðinum,“ segir Gylfi.
Sambærilegir samningar hafa verið gerðir víðar. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur undirritað viljayfirlýsingar á fleiri stöðum um að sveitarfélög taki við verkefninu.
Gylfi segir ríða á að bæta verknámsaðstöðu enda vanti menntað fólk í margar iðngreinar á Ísafirði. „Til að mynda pípulagnir, húsasmíði, rafiðngreinar af ýmsu tagi, vélfræði, stáliðn og háriðn og fleiri.“
Næsta skref er að undirrita samning þar sem fjárhæðir og fermetratölur verða tilteknar nánar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær hægt verður að taka húsið í notkun en Gylfi býst við að þunginn í framkvæmdunum verði 2028.