Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna í ágúst 2022. Húsið var auglýst mikið endurnýjað og bæði þak og frárennslislagnir sögð endurnýjuð. Raunin reyndist önnur og var viðgerðarkostnaður vegna þaks, rakaskemmda og myglu metinn á nær helming kaupverðsins.
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa