Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu Eflingar innan ASÍ þar sem hún telji verka- og láglaunafólk eiga lítið sameiginlegt með VR og hærra launuðum hópum innan sambandsins.
Hún segir að hún og stjórn Eflingar hafi setið á fundum í dag og séu komin á þann stað að geta ekki annað en velt því fyrir sér hvað verka- og láglaunafólk raunverulega eigi sameiginlegt með VR og hærra launuðum hópum innan ASÍ.
„Er yfirleitt hægt fyrir okkur að vera í Alþýðusambandinu með hópum eins og þessum, þar sem hagsmunir verka- og láglaunafólks, sem við erum að vinna fyrir og reyna að vernda, virðast vera einskis virði þegar kemur að persónulegum metnaði, framagirni og löngun formanna til þess að vera í fjölmiðlum,“ segir Sólveig Anna sem telur að ASÍ hafi í raun aldrei verið eins klofið
Ekkert nýtt í aðgerðum stjórnvalda
Hún taldi þó aðgerðir ríkisstjórnarinnar lofmælanlegar.
„Þetta er góður aðgerðapakki hjá stjórnvöldum og hann lá fyrir á þriðjudagskvöldið, meðal annars að sú aðgerð sem hér var sérstaklega talað um hefði verið sett inn í hann til að koma til móts við formann VR,“ segir Sólveig.
Halla Gunnarsdóttir formaður VR sagði fyrr í dag að 12. liður aðgerðanna, sem fela í sér vaxtabótaauka, hefði verið eitt af því sem réð úrslitum um að samkomulag náðist við Samtök atvinnulífsins í dag.
„Þetta var okkur kynnt á þriðjudagskvöldið þannig að það lá fyrir og ég geri svo sannarlega ekki lítið úr mikilvægi þeirra aðgerða sem þarna koma fram en það er auðvitað leitt að sjá að framferði formanns VR hefur getað búið hér til þennan mikla fjölmiðlasirkus sem við höfum séð hér í dag,“ segir Sólveig sem telur að samkomulag VR og SA feli ekkert nýtt í sér.
„Og það er ekkert í pakka stjórnvalda sem lá ekki þegar fyrir og hafði ekki þegar verið kynnt,“ segir hún.
Leikrit hafi verið sett á svið fyrir formann VR
Því telji hún að ákveðið leikrit hafi verið sett á svið. „Það er algerlega augljóst,“ segir hún
„Til þess að liðsinna formanni VR, til þess að koma henni úr þeirri miklu klípu sem hún var búin að koma sér í,“ segir Sólveig sem hafnar því að VR og önnur félög hafi ekki verið látin vita af því að Breiðfylkingin á íslenskum vinnumarkaði, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, hafi ætlað að framlengja samninga við SA.
„Ég er með tölvupóst sem er sendur þarna á þriðjudagskvöldið, stuttu áður en ég og Vilhjálmur Birgisson og Hilmar Harðarson förum og skrifum undir fyrir hönd Breiðfylkingarinnar,“ segir hún.
Hún segir póstinn hafa verið sendan 21:09 og að Halla Gunnarsdóttir hafi verið viðtakandi á þeim pósti.
„Þannig að fólk ætlar hér, eftir að hafa dregið okkur öll í gegnum þennan sirkus, að reyna að halda því fram að þau hafi ekki verið upplýst um hvað var í gangi, það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks,“ segir Sólveig.