Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.
Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sagði í dag að almenningi yrði gert kleift að fylgjast með aftökunni, sem á að fara fram með aftökusveit í Fort Hood, sömu herstöð og árásin átti sér stað í, þann 3. desember.
„Við munum tryggja að fólk geti horft á hana og að hún fari fram opinberlega,“ sagði Hegseth. Hann sagði mikilvægt að fólk gerði sér grein fyrir því að glæpir sem slíkir hefðu alvarlegar afleiðingar.
Hasan, sem starfaði sem geðlæknir í Bandaríkjaher, skaut þrettán manns til bana og særði 32 til viðbótar á herstöðinni Fort Hood í nóvember árið 2009. Hann var dæmdur til dauða árið 2013 fyrir morðin.
Skotárásin átti sér stað nokkrum vikum áður en Hasan, sem nú er 56 ára, átti að fara í herþjónustu til Afganistans. Hann var skotinn af lögreglu við handtöku með þeim afleiðingum að hann lamaðist að hluta og þarf að nota hjólastól.
Donald Trump Bandaríkjaforseti samþykkti aftökuna fyrr í vikunni að tillögu Hegseths.
Aftaka með aftökusveit var ein af nokkrum aðferðum við framkvæmd dauðarefsinga sem ríkisstjórn Trumps bætti nýverið við leyfilegar aftökuaðferðir vegna alvarlegustu alríkisglæpanna, ásamt aftöku með rafmagnsstól og köfnun af völdum gass.
Verði aftakan framkvæmd verður hún sú fyrsta á vegum Bandaríkjahers í meira en 60 ár. Síðasta aftaka Bandaríkjahers fór fram árið 1961 og síðasta aftaka með aftökusveit árið 1945.
Ekki hefur verið tilkynnt hvar almenningur getur fylgst með beina streyminu.