Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina upp.
Þetta sagði Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, á neyðarfundi með ráðherrum og yfirmönnum öryggismála í dag. Pólska ríkisútvarpið greinir frá.
Drengurinn, sem er fyrrverandi nemandi skólans, réðst inn í grunnskóla í bænum Leszczydół-Nowiny, norðaustur af Varsjá, í morgun. Hann réðst á þrjá starfsmenn skólans, þar á meðal skólastjóra og ræstingakonu.
Konan, sem var 37 ára og tveggja barna móðir, lést þrátt fyrir endurlífgunartilraunir. Skólastjórinn og kennari særðust þegar þau reyndu að stöðva árásina. Skólastjóranum tókst að yfirbuga drenginn.
Óttast að árásirnar tengist áskorunum á netinu
Tusk lýsti áhyggjum af aukinni ofbeldisdýrkun og hættunni á að ungmenni hermdu eftir ofbeldisverkum sem þau sæju á netinu. Hann nefndi meðal annars áskoranir á samfélagsmiðlum, tölvuleiki og annað ofbeldisefni.
Lögregla rannsakar nú hvort árásin tengist svokallaðri netáskorun en tilefni árásarinnar er enn óþekkt. Tusk hefur kallað eftir því að lögreglumenn heimsæki alla skóla landsins að minnsta kosti einu sinni á dag til að auka öryggi.
Þrjú atvik á tveimur dögum
Þrjú alvarleg atvik tengd pólskum skólum hafa komið upp á síðustu tveimur dögum.
Í gær særðust níu manns þegar 19 ára piltur réðst á fólk með sveðju í skóla í borginni Ostrołęka. Árásarmaðurinn særðist einnig og var handtekinn. Þá handtók lögregla 17 ára ungmenni í bænum Sierpc í gær, grunað um að hafa undirbúið sambærilega árás á skóla.
Lögregla rannsakar hvort tengsl séu á milli atvikanna.
Skólayfirvöld á svæðinu hafa boðað skólastjórnendur til myndbandsfundar á morgun, föstudag, þar sem farið verður yfir öryggisráðstafanir í skólum.