Það var tilfinningarík stund þegar þúsundir hermanna um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Abraham Lincoln komu í land í San Diego í Kaliforníu í gær eftir tæplega árs úthald um borð í skipinu. Yfir hundrað feður hittu börn sín í fyrsta sinn, sem fæddust á meðan þeir voru útsendir.
Upphaflega átti úthald hermannanna að vera hálft ár en það dróst vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum.
Flugmóðurskipið yfirgaf Kaliforníu í nóvember á síðasta ári og hélt áleiðis til Kínahafs. Þegar stríðið braust út í Mið-Austurlöndum sigldi Abraham Lincoln áleiðis til Mið-Austurlanda og var á sjó í alls 286 daga eða þar til í september þegar áhöfnin fór í land í Taílandi áður en áfram var haldið heim á leið til Bandaríkjanna.
Áhyggjufullir aðstandendur vöktu athygli á aðstæðum um borð
Þetta langa úthald hermanna um borð í flugmóðurskipinu rataði í fjölmiðla í ágúst þegar greint var frá áhyggjum aðstandenda af andlegri líðan hermannanna og aðbúnaði um borð eftir langa veru á sjó.
Matur var sagður af skornum skammti um borð, hreinlætisaðstöðu var ábótavant og erfitt var fyrir hermenn og fjölskyldur þeirra að halda sambandi vegna fjarskiptaörðugleika.
Donald Trump Bandaríkjaforseti gerði lítið úr áhyggjum aðstandenda og Pete Hegseth varnarmálaráðherra sagði að lýsingar á aðstæðum um borð hefðu verið rangar. Ríkisstjórn Trumps hefur síðan viðurkennt að átta sjálfsvígstilraunir hafi verið gerðar um borð í skipinu á meðan það var útsent.