Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að rannsaka neikvæð áhrif bólusetninga, þar á meðal með opnun sérstakrar rannsóknarmiðstöðvar um bólusetningar
Hann segir nauðsynlegt að hlustað sé á sjúklinga og fjölskyldur sem segi frá „bólusetningaráverkum“, eins og hann orðar það í tilkynningu sinni. Markmiðið segir hann vera að byggja aftur upp traust til heilbrigðisyfirvalda.
Kennedy var skipaður heilbrigðisráðherra af Donald Trump Bandaríkjaforseta þrátt fyrir að hafa engan bakgrunn í heilbrigðisvísindum. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir tilraunir sínar til að breyta umgjörð um bólusetningar barna í landinu en sjálfur hefur hann haldið á lofti ýmsum samsæriskenningum um bólusetningar.
Þegar undir stöðugu eftirliti
Bóluefni geta haft aukaverkanir rétt eins og önnur lyf en alvarlegar aukaverkanir eru afar sjaldgæfar. Þá eru þær þegar undir stöðugu eftirliti til að gæta þess að ávinningurinn vegi þyngra en áhættan.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, WHO, koma bólusetningar í veg fyrir um fimm milljónir dauðsfalla ár hvert af völdum sjúkdóma á borð við barnaveiki, stífkrampa, inflúensu og mislinga.
Mislingafaraldur hefur raunar þegar brotist út í Bandaríkjunum. Það má rekja til þess að mjög hefur dregið úr þátttöku í bólusetningum þar í landi vegna vantrausts almennings á heilbrigðisyfirvöldum. Í Pennsylvaníu-ríki hafa fimm dáið úr mislingum það sem af er ári.