Guðný María Jóhannsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur og Brynhildur Bolladóttir formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl hittu fréttamann og tökumann Sýnar á Skólavörðustíg og ræddu málið.
Horfa má á viðtalið í heild sinni hér fyrir neðan.
Samkvæmt yfirliti yfir stæðin sem hafa verið tekin aftur í notkun eða verða opnuð á allra næstu dögum eru þau á þessum stöðum:
- Tvö fyrir framan Kalda á Klapparstíg.
- Eitt fyrir framan Bad Mickey á Pósthússtræti.
- Tvö fyrir framan Café Babalú á Skólavörðustíg.
- Tvö fyrir framan Bingó á Skólavörðustíg.
- Fjögur fyrir framan Messann á Lækjargötu.
- Eitt við Ráðhúsið á Tjarnargötu.
- Eitt við Eimskipafélagshúsið í Hafnarstræti.
- Eitt við Gamla bíó í Ingólfsstræti.
- Eitt á Bergstaðastræti fyrir ofan Kaffibarinn.
Útiveitingasvæði við Kalda, Café Babalú, Bingó og Messann verða fjarlægð. Í yfirlitinu kemur fram að svæðin við þrjá fyrstnefndu staðina séu þar yfir sumarið.