Síldarvertíðin gengur vel og fiskurinn er verkaður allan sólarhringinn hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Unnið er á tveimur tólf tíma vöktum og eru allt að tuttugu og fimm manns að störfum hverju sinni.
Á vef Vinnslustöðvarinnar er haft eftir Sindra Viðarssyni sviðsstjóra uppsjávarsviðs að vinnslan hafi farið af stað í september og gert sé ráð fyrir að um tvær vikur séu eftir af vertíðinni.
Skip sem halda úr höfn frá Vestmannaeyjum þurfa að sigla í rúmar tuttugu klukkustundir á miðin austan við landið en þar er norsk-íslenska síldin veidd. Hún er yfirleitt stærri en íslenska síldin.
Sindri segir að skipin hafi jafnan komið með á bilinu sjö hundruð til þúsund tonn til löndunar og því hafi tekist að halda vinnslunni gangandi næstum samfleytt þótt styttri hlé hafi verið gerð vegna veðurs.