Mikil mótmæli hafa verið í Frakklandi undanfarna daga. Hundruð þúsunda hafa tekið þátt í þeim og þau hafa breiðst út um allt land.
Mótmælin hófust meðal nemenda í framhaldsskólum sem kröfðust betri aðbúnaðar í skólum. Nemendur tala um slæmar aðstæður. Í sumum skólum séu hvorki næg borð né stólar fyrir nemendur og dæmi hafa verið tekin um skóla þar sem ekki eru hurðir á salernum.
Nemendur tala um yfirfulla bekki, langa skóladaga og vinnuaðstæður kennara.
Þeir krefjast þess að stjórnvöld setji fjármagn í viðhald skólabygginga til að tryggja viðunandi námsaðstæður.
Kröfurnar hafa svo orðið skýrari og fleiri.
Lögregla hefur handtekið fjölda ungmenna
Mótmælin hófust upp úr miðjum september og síðan þá hafa yfir sex þúsund verið handtekin.
Í byrjun október sagði ríkisstjórn Frakklands að mótmælin hefðu þróast í ofbeldi og Sebastien Lecornu forsætisráðherra hvatti ráðherra til að fresta ferðalögum um landið.
Nemendur hafa gagnrýnt stjórnvöld fyrir að setja ekki nægilegt fé í menntakerfið. Einn nemandi sagði í viðtali við AFP fréttaveituna að ríkisstjórnin eyddi meira fé í að takmarka samfélagsmiðlanotkun en að viðhalda skólabyggingum landsins.
Ríkisstjórnin hefur jafnframt sakað stjórnmálamenn á vinstri væng stjórnmálanna, einkum úr flokki La France Insoumise, um að hafa ýtt undir mótmælin. Þeir hafa hafnað þeim ásökunum.
Mótmælin hafa því undið upp á sig. Upphaflega snerust þau um kröfur nemenda en hafa þróast yfir í stærri umræðu um stefnu stjórnvalda í menntamálum.
Fleiri hafa bæst í hóp mótmælenda. Háskólanemar og verkalýðshreyfingin hafa tekið þátt eða lýst yfir stuðningi við kröfurnar og gagnrýnt forgangsröðun útgjalda ríkisstjórnarinnar.
Skólastarf hefur raskast í hundruðum skóla
Lögregla hefur beitt táragasi til að ná stjórn á mótmælum og óeirðalögregla hefur verið kölluð út. Komið hefur til átaka milli mótmælenda og lögreglu.
Mótmælendur hafa kveikt í ruslatunnum, húsgögnum og inngöngum skóla.
Flestar göngur hafa þó farið friðsamlega fram.
Nokkrir mótmælendur hafa slasast í mótmælunum. 15 ára nemi missti hönd þegar hvellsprengju var kastað inn í hóp mótmælenda. Ekki liggur fyrir hver varpaði sprengjunni og málið er til rannsóknar.
Frönsk stjórnvöld hafa því bannað lögreglu tímabundið að nota hvellsprengjur við störf sín og lögregla hefur verið sökuð um að ganga of langt.
Yfirvöld segja að 715 lögreglumenn hafi slasast í mótmælunum og hátt í 300 nemendur og starfsmenn framhaldsskóla.
Frönsk mannréttindasamtök hafa lýst áhyggjum af því sem þau segja óhóflega valdbeitingu lögreglu gegn mótmælendum.
Talið er að um 250 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum.
Emmanuel Macron forseti Frakklands og Sébastien Lecornu forsætisráðherra héldu neyðarfund í vikunni og Lecornu ávarpaði frönsku þjóðina.
Hann sagði þar að stjórnvöld gætu ekki hunsað áhyggjur nemenda, kröfur þeirra væru réttmætar. Stjórnvöld legðu fram aðgerðaáætlun fyrir lok mánaðar.
Mótmælin hafa þrátt fyrir þau orð haldið áfram í dag.
Mótmæli hafa áður verið notuð til að knýja á um úrbætur
Mótmæli og verkföll eru hluti af franskri stjórnmálamenningu. Þessi mótmæli eru ekki þau fyrstu sem franskir nemar blása til. Áður hafa mótmæli þeirra borið árangur og jafnvel skilað auknum fjárveitingum til menntamála.
Árið 1990 voru mótmæli vegna fjárskorts og skorts á kennurum. Þá kynnti ríkisstjórnin neyðaráætlun upp á fjóra milljarða franka til endurbóta á skólahúsnæði.
Árið 1998 voru kröfur nemenda að mörgu leyti svipaðar og þær sem heyrast nú, meðal annars um fleiri kennara, aukið fjármagn og betra skólahúsnæði. Þá komu stjórnvöld á sérstakri áætlun um framkvæmdir og endurbætur á húsnæði framhaldsskóla.
Árið 2006 voru síðan umfangsmikil mótmæli meðal nemenda og ungs fólks gegn lagasetningu sem átti að auðvelda ráðningu ungs fólks en voru gagnrýnd fyrir að auka óöryggi á vinnumarkaði.
Stjórnvöld drógu lagasetninguna til baka eftir vikulöng mótmæli.