Borgarráð samþykkti í gær að afturkalla úthlutun tveggja lóða sem trúfélög fengu fyrir meira en áratug.
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan á Íslandi, söfnuður Moskvu-Patríarksins, fékk úthlutað lóð við Mýrargötu 2008 til að reisa sér kirkju og Félag múslima á Íslandi fékk lóð við Suðurlandsbraut 2013 til að reisa sér mosku. Hvorugt trúfélagið hefur hafist handa við framkvæmdir.
Borgarráð samþykkti með atkvæðum meirihlutans og Miðflokksins að afturkalla lóðaúthlutanirnar en Samfylkingin sat hjá við afgreiðslu málsins.
Borgarráðsfulltrúar meirihlutans bókuðu að málefnalegar forsendur væru fyrir því að afturkalla úthlutunina þar sem engar framkvæmdir hefðu hafist þrátt fyrir liðna framkvæmdafresti og fyrri framlengingar. Meirihlutinn lagði áherslu á að þetta væru almennar aðgerðir og sagði mikilvægt að Reykjavíkurborg gætti jafnræðis við úthlutun lóða.
Fulltrúar Samfylkingarinnar bókuðu að málefnaleg sjónarmið lægju að baki afturkölluninni þar sem framkvæmdir hefðu ekki hafist. Þetta væri hluti af stærra ferli við að endurheimta lóðir sem ekki hafi verið nýttar. Þeir sögðu miður að trúfélögunum hefði ekki tekist að koma sér upp aðstöðu þar sem slík félög gegndu mikilvægu hlutverki fyrir fjölbreytta hópa borgarbúa.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins sagði rétt að stíga varlega til jarðar við innköllun lóða sem væru ætlaðar trúfélögum, að minnsta kosti þegar ekki væri unnt að gera það í sátt. Fulltrúar trúfélaganna höfðu andmælt afturköllun lóðanna. Áheyrnarfulltrúinn sagði að mörg dæmi væru um það í sögunni að byggingar á vegum trúfélaga tækju langan tíma, félögin væru ekki rekin í hagnaðarskyni og bankastofnanir væru mjög tregar til að veita lán til slíkra framkvæmda.