Aukakosningar voru haldnar í Holborn og St. Pancras, kjördæmi Keir Starmers, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, í gær. Kosið var um sæti Starmers en Sagal Abdi-Wali, frambjóðandi Verkamannaflokksins, sigraði með miklum yfirburðum og tryggði sér tæplega 12.292 atkvæði.
Leiðtogi Græningja, Zack Polanski, varð í öðru sæti með 8.928 atkvæði. Það þykir mikill skellur fyrir Græningja að hann hafi ekki tryggt sér sætið.
Sagal Abdi-Wali hefur fangað athygli fjölmiðla á Bretlandi með sigri sínum. Hún kom til landsins sex ára gömul sem flóttamaður frá Sómalíu, ásamt foreldrum sínum og fjórum bræðrum. Hún eignaðist vini í gegnum fótbolta áður en hún náði tökum á ensku.
Abdi-Wali varð leiðtogi Camden-borgarstjórnarinnar í maí, fyrst kvenna. Hún vill bæta stöðu heimilislausra og skapar tækifæri fyrir ungt fólk.
Keith Starmer sagði af sér sem forsætisráðherra í júní en ætlaði að sitja áfram sem þingmaður. Hann tilkynnti síðan 1. september að hann hefði ákveðið að segja af sér þingmennsku og ætlaði að einbeita sér að alþjóðamálum.