Navalnaja þykir nú sigurstranglegust samkvæmt Polymarket, veðmálasíðunni umdeildu. Líkur þar eru ekki ákveðnar af veðmangara heldur veðja notendur síðunnar gegn hver öðrum.
Á örfáum mínútum fóru líkur Navalnaja úr fimm prósentum í þriðjungslíkur í nótt. Hæst fóru líkurnar í 67 prósent en í morgun voru þær aftur komnar niður í rúmar þriðjungs líkur samkvæmt norsku fréttaveitunni NTB.
Kvöldið áður en Nóbelsnefndin tilkynnti að María Corina Machado, leiðtogi venesúelsku stjórnarandstöðunnar, hlyti friðarverðlaunin í fyrra skutust sigurlíkur hennar á Polymarket upp úr 3,74 prósentum í 72,9 prósent. Notandi með nýstofnaðan aðgang að síðunni vann þá rúmlega sex milljónir króna.
Tilkynnt verður um friðarverðlaunahafa Nóbels klukkan níu að íslenskum tíma í dag.
Navalní lést í rússnesku fangelsi árið 2024. Ekkja hans hefur fullyrt að eitrað hafi verið fyrir honum í fangelsinu. Rússneskur dómstóll gaf út handtökuskipun á hendur Navalnaju árið 2024 en stjórnvöld í Kreml skilgreina stjórnmálasamtök Navalní sem öfgasamtök.