Digger grefur sína eigin gröf - Vísir

Digger grefur sína eigin gröf - Vísir

Digger grefur sína eigin gröf - Vísir

Digger er nýjasta kvikmynd mexíkóska leikstjórans Alejandro González Iñárritu sem hefur áður gert kvikmyndir á borð við Revenant (2015), Birdman (2014), Babel (2006) og Amores Perros (2000). Handritið skrifar hann sjálfur ásamt Alexander Dinelaris, Nicolási Giacobone og Sabinu Berman.

Leikhópur myndarinnar er fjölmennur með stórstjörnuna Tom Cruise fremsta í flokki en auk hans fara John Goodman, Riz Ahmed, Sandra Hüller og Jesse Plemons með burðarhlutverk í myndinni.

Taumlaus olíugröftur olíuauðjöfursins Diggers Rockwell (Cruise) verður þess valdur að borgarísjaki losnar frá Grænlandi og stefnir á Evrópu með hræðilegum afleiðingum. Digger þarf í samvinnu við Bandaríkjaforsetann Compson (Goodman) að reyna að afstýra þessum hamförum. Hins vegar er ekki allt sem sýnist hvað Digger varðar og heiminn sem hann hrærist í.

Digger var frumsýnd hérlendis 1. október síðastliðinn og er sýnd í Sambíóunum, Smárabíói og Laugarásbíói.

Ofleikur, skopstælingar og íburðarmikil sviðsetning

Auðjöfurinn Digger Rockwell er af olíuættum og býr í risavaxinni höll sinni með kettinum Maggie sem er orðin 38 ára gömul og svo hrum að hún er þjökuð af öllum mögulegum kvillum. Eftir að Digger hunsar varúðarorð öryggissérfræðinga vegna olíuboranna á Grænlandi verður risavaxin sprenging þess valdandi að stærðarinnar borgarísjaki losnar og stefnir hraðbyri til Evrópu.

Digger kallar á sinn fund Dr. Ganesh (Ahmed) sem er yfirmaður öryggismála fyrirtækisins, Bandaríkjaforsetann Compson (Goodman) sem er þjakaður af krabbameini í endaþarmi og allt hans ráðherralið. Þeir deila um næstu skref, hvort sprengja eigi borgarísjakann í tætlur eða láta hann óáreittan og sjá hvar hann endar, en eiga erfitt með að taka ákvörðun, líkt og í Dr. Strangelove sextíu árum fyrr. Hálfsystir Diggers, Emma (Hüller), skýtur nokkrum sinnum inn til að skammast í bróður sínum en hún rekur grænt og sjálfbært dótturfyrirtæki hans.

Þegar raunveruleikinn verður fáránlegur er erfitt að hæðast að honum án þessa að enda í skopstælingu.

Persónurnar eru ýktar skopstælingar af sígildum steríótýpum. Rockwell er samsuða af sígildum suðurríkjakörlum, Bond-illmenninu Ernst Blofeld og öðrum frægum Cruise-karakter, Les Grossman úr Tropic Thunder. Cruise nýtur þess að fara alla leið sem fráhrindandi en dálítið sjarmerandi illmennið. Compson forseti er seníll, barbarískur og vitlaus líkt og einhver útþynnt blanda af Trump og Biden meðan Dr. Ganesh er hinn týpíski taugaveiklaði vísindamaður. 

Fyrir utan yfirgengilegan ofleikinn er sviðsetningin leikhúsleg, leikmyndin íburðarmikil og litapallettan eins og blanda af grálituðum myndum Roys Andersson og pastel-pallettu Wes Anderson. Kvikmyndatökumaðurinn Emmanuel Lubezki rammar karakterana skemmtilega inn með víðum skotum sem gefa myndinni ákveðinn óraunveruleikablæ. Hljóðhönnunin er kraftmikil með háværum hurðaskellum, dinkum og tónlist Cosmo Sheldrake sem blandar saman dýrahljóðum við treblásturshljóðfæri, trommuslátt, sinþa og lúðrasveitarspil.

Allt sem á undan hefur komið kemur fram í markaðsherferð kvikmyndarinnar en í aðdraganda hennar hafa margir velt því fyrir sér hvort Digger sé dulin söngleikjamynd, falin undir yfirskyni hamfaramyndar um megalómaníak með messíasarkomplex. Digger er vissulega ekki söngleikjamynd en það er samt dálítið sem hangir á spýtunni. 

Hér neyðist ég til að greina frá mikilvægu spillefni sem lesendur ættu að varast vilji þeir sjá Digger. Til að forðast það er best að skauta yfir næstu kafla og fara beint í niðurstöðurnar.

Tom Cruise kjamsar á ýktum efniviðnum.

Sá Digger sem við sjáum í myndinni er nefnilega skáldaður karakter leikinn af leikaranum Curtis Markson (Cruise), sem byggir á Digger Rockwell, sögulegri persónu, og kemur fyrir í leikritinu Fossil Fuels, költklassík sem er verið að sviðsetja í kvikmyndinni. 

Tálsýnin er rofin þegar sviðsmyndin bilar og leikstjórinn kemur á svið. Iñárritu beitir framandgervingu, sem þýska leikskáldið Bertolt Brecht varð frægur fyrir, til að sýna þeim að þeir séu að horfa á eitthvað sem er búið að framleiða fyrir þá. Brecht beitti aðferðinni til að koma í veg fyrir að áhorfendur týndu sér í leikritum og yrðu meðvitaðir um að þeir séu enn í raunheimum. Ekki nóg með að þetta sé leikrit heldur kemur í ljós að aðalleikarinn Curtis er óánægður með sviðsetninguna, finnst hún ýkt, ótrúverðug og ósönn því sem gerðist.

John Goodman er yfirdrifinn og yfirgengilegur sem Compson forseti.

Þar með breytist sýn áhorfenda á fyrsta þriðjunginn, ýkjurnar og fáránleikinn eru augljóslega markviss. Iñárritu virðist vera að hæðast að skopi sem hefur verið ríkjandi undanfarin ár í kvikmyndum á borð við Don't Look Up (2021) og Mickey 17 (2025) og háðsádeiluþáttum á borð við SNL þar sem frjálslyndir kratar beina spjótum sínum að Trump, Elon Musk og öðrum þeirra líkum.

Fáránleikinn er með vilja gerður og grínið, sem samanstendur af miklum neðanbeltishúmor, er markvisst yfirdrifið, jafnvel ófyndið. Myndin er uppfull af gríni, hreinum og beinum bröndurum, sjónrænu gríni og farsakenndum yfirlýsingum, en málið er að sárafátt fær áhorfendur til að hlæja - allavega ekki miðað við tvær bíóferðir mínar. Hundurinn liggur að einhverju leyti þar grafinn.

Utan leiksviðsins kynnast áhorfendur aðalleikaranum Curtis lítillega og fá smjörþef af heimi kvikmyndarinnar sem gerist einhverja áratugi fram í tímann. Leikhúsið glímir við vatnsskort, reglulegt rafmagnsleysi og í fréttunum berast fregnir af fellibyl. Hliðarflétta myndarinnar birtist í þessum senum og snýr að dóttur leikarans sem lendir í háska vegna hörmunganna. 

Skáldskapur, lygar og frásagnarbrellur

Áhorfendum er dembt aftur inn í leikritið og sagan heldur áfram með tilheyrandi hörmungum fyrir Jarðarbúa. Á endanum er Digger dreginn fyrir Evrópuráðið og þar tekur við eitt besta atriði myndarinnar: tíu mínútna langur mónólógur þar sem Digger urðar yfir evrópska embættismenn fyrir heigulskap og hræsni. 

Brechtísk nálgunin er tekin alla leið þegar Digger ávarpar áhorfendur beinlínis. Þótt hann hafi vissulega hraðað hamfarahlýnunni þá séu þeir meðsekir. Hann hafi fengið að komast upp með eyðilegginguna af því fólk vill ekki fórna sínu þægilega lífi til að stöðva hamfarirnar. Sjónum er ekki lengur beint að lélegri ádeilu heldur almenningi sem hefur setið aðgerðalaus hjá.

Cruise er hvað bestur í löngum mónólóg Diggers um miðbik myndar.

Eitt lykilþema myndarinnar er það hvernig sögur eru sagðar ýmist til að brengla sannleikann eða henda reiður á honum. Digger talar stöðugt um að sannleikurinn skipti ekki máli heldur einungis hver segir söguna hverju sinni. Hann snýr stöðugt upp á sannleikann sér í hag, ritskoðar samfélagsmiðla til að dempa högg hamfaranna, lýgur að undirmanni sínum til að fá sínu fram og blekkir meira að segja sjálfan sig að lokum. Við blekkjum okkur sjálf með listinni með því að telja okkur trú um að hún geti einhverju breytt þegar hún í raun afvegaleiðir og kemur í veg fyrir raunverulegar aðgerðir.

Þessar vangaveltur eru skemmtilegar en drukkna samt sem áður í leikritinu sem heldur áfram á sömu nótum með tilheyrandi kúkabröndurum, ofleik og skopstælingum á þeim sem ráða. Iñárritu er of upptekinn af því hvað honum finnst leikritið sniðugt, sem það er ekki, til að kafa dýpra ofan í efnið og hjakkar í staðinn áfram í sama farinu. 

Riz Ahmed er frábær í hlutverki vísindamannsins Dr. Ganesh.

Rammasagan er fyrsta frásagnarbrella Iñárritu en hann er með fleiri tromp á hendi. Næsta afhjúpun kemur á síðasta hálftímanum þegar framleiðandi leikritsins, Kenny (Plemons), reynist vera systursonur Diggers og jafnframt persóna í leikritinu. Fjölskyldan sem steypti heiminum í glötun er enn valdamikil og hagnast á því að selja áhorfendum sögu af eigin hrakförum.

Kenny reynir að miðla málum milli aðalleikarans sem finnst leikritið vera ódýrt og ótrúverðugt og leikstjórans sem fullvissar hann um að leikritið sé fyndið og nauðsynlegt til að gefa fólki kaþarsis og tækifæri til að hlæja að þeim sem komu jörðinni á þennan stað. Kenny segir báða aðila hafa á réttu að standa, leikritið sé í senn fáránlegt og sannsögulegt, mikilvægi þess felist í því að gefa almenningi griðastað í listinni. Um leið er tilvist framleiðandans sjálfsvísun (e. metafiction) í kvikmyndina Digger sem er auðvitað framleidd af stórfyrirtækjum sem græða á því að fjármagna ádeilur um þá valdamiklu.

Jesse Plemons er í hrópandi ósamræmi við flestalla aðra leikara myndarinnar og líka einn besti hluti hennar.

Síðasta afhjúpun Iñárritu kemur svo í lokin þegar leikritinu lýkur og áhorfendur fagna eins og brjálæðingar yfir örlögum skaðvaldanna áður en það ómar varúðarpíp. Þau setja á sig gasgrímur og ganga út úr leikhúsinu í heim sem búið er að sökkva á kaf. Þó að listin veiti okkur fró þá býr hún ekki yfir krafti til að breyta heiminum. Kreditlistinn rúllar meðan áhorfendur horfa á heiminn sem hefur hrunið þar til varúðarpípið ómar aftur: Eftir að hafa horft á bitlausa satíru göngum við út í okkar eigin heim sem stefnir í sömu átt.

Iñárritu reynir að halda mörgum boltum á lofti en nær ekki að grípa þá, hann er of upptekinn af sögu Digger til að koma henni heim og saman við það sem er að gerast í umheimi kvikmyndarinnar. Rammasagan er afskipt, hliðarfléttan um dótturina nær engum slagkrafti og áhorfendur fá ekki tækifæri til að tengjast persónunum sem eru allar tvívíðar. Þrátt fyrir frásagnarloftfimleika er lokaniðurstaðan á endanum frekar grunnhyggin og skilur ekki mikið eftir sig - babúskan er hol að innan.

Niðurstaða

Digger tekst á við áleitin mál samtímans og gerir í því að ögra áhorfendum og taka sénsa. Vangaveltur um skáldskap sem er bæði bitlaust byltingartól og mannfólki nauðsynlegur til að takast á við hörmungar eru snjallar en Iñárritu er svo upptekinn af brechtísku konseptinu að hann nær ekki að kafa neitt dýpra ofan í þær.

Það er miður að myndin gangi ekki upp sem heild því fjölmargir færir listamenn koma að verkinu. Gervi og búningar eru góð, leikmyndin er framúrskarandi og tónlistin einstök. Leikararnir eru misjafnir, Tom Cruise og Riz Ahmed komast vel frá sínu meðan John Goodman er heldur leiðinlegur í sínum ofleik og svo hefur hin frábæra Sandra Hüller sennilega aldrei verið slappari.

Digger hefur skapað umræðu, fengið harða gagnrýni og dálítið lof en laðað fáa áhorfendur í bíó. Gagnrýnandi hvetur fólk til að skella sér á hana í bíó því þrátt fyrir gallana er hún áhorfsins virði og best í stórum sal með góðu hljóði. 

Leikritið Fossil Fools er költklassík í heimi Digger og því greinilegt að Iñárritu hefur séð misjafnar viðtökurnar fyrir. Það verður áhugavert að sjá þegar fram líða stundir hvort kvikmyndin verði költklassík eins og leikritið.

#digger #eigin #grefur #gröf #sína


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262944197d/digger-grefur-sina-eigin-grof

📰 Aðrar fréttir

Beitti ákveðinni og sjarmerandi aðferð til að hreppa hlutverkið í Titanic
📅 09.10.2026 👁️ 1
Beitti ákveðinni og sjarmerandi aðferð til að hreppa hlutverkið í Titanic
Breska leikkonan Kate Winslet beitti sjarmerandi en jafnframt „ákveðinni“ aðferð til að sannfæra leikstjórann James Cameron eftir að hún hafði farið í...
Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum - Vísir
Friðrik Ómar er samkynhneigður og hefur ekki farið leynt með það. Í seinni tíð hið minnsta. „Ég myndi segja að ég hafi komið frekar seint úr skápnum. ...
Vildi ekki útskýra hvers vegna hún fletti níu sinnum upp í sjúkraskrá án leyfis
📅 09.10.2026 👁️ 1
Vildi ekki útskýra hvers vegna hún fletti níu sinnum upp í sjúkraskrá án leyfis
Kona sem starfar á Landspítalanum braut lög þegar hún fletti upp í sjúkraskrá annarrar konu án leyfis og án þess að það tengdist starfi hennar á nokku...
Yfir sjö­tíu þúsund mót­mæltu þrátt fyrir umbótatillögur - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Yfir sjö­tíu þúsund mót­mæltu þrátt fyrir umbótatillögur - Vísir
Mótmælin hófust 17. september í úthverfi Parísarborgar en hafa dreifst út um allt land. Mikill fjöldi nemenda, kennara, foreldra og annarra sem styðja...
Veð­mál á sigur Navalnaju hrúgast inn - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Veð­mál á sigur Navalnaju hrúgast inn - Vísir
Navalnaja þykir nú sigurstranglegust samkvæmt Polymarket, veðmálasíðunni umdeildu. Líkur þar eru ekki ákveðnar af veðmangara heldur veðja notendur síð...
€400,000 immersive Christmas attraction planned for Maspalomas
📅 09.10.2026 👁️ 1
€400,000 immersive Christmas attraction planned for Maspalomas
A new immersive Christmas attraction costing just over €400,000 is planned for Maspalomas in Gran Canaria this festive season. The attraction will pro...
Everton owners The Friedkin Group consider selling club
📅 09.10.2026 👁️ 1
Everton owners The Friedkin Group consider selling club
Everton owners the Friedkin Group are exploring the sale of the club less than two years after taking control.
Læknir setti fóstureyðingarlyf í mat barnshafandi kærustu – Gæti nú misst ríkisborgararéttinn
📅 09.10.2026 👁️ 1
Læknir setti fóstureyðingarlyf í mat barnshafandi kærustu – Gæti nú misst ríkisborgararéttinn
Læknir sem setti fóstureyðingarlyf í hafragraut barnshafandi kærustu sinnar hefur nú verið sakfelldur fyrir að afla sér bandarísks ríkisborgararéttar ...
Rétttrúnaðarkirkjan og múslimar missa lóðirnar
📅 09.10.2026 👁️ 1
Rétttrúnaðarkirkjan og múslimar missa lóðirnar
Borgarráð samþykkti í gær að afturkalla úthlutun tveggja lóða sem trúfélög fengu fyrir meira en áratug.Rússneska rétttrúnaðarkirkjan á Íslandi, söfnuð...
How to get the best out of a long airport layover
📅 09.10.2026 👁️ 1
How to get the best out of a long airport layover
The first flight is behind you. The next one leaves in five, seven or nine hours, and sitting by the gate for all of it makes very little sense. Sorry...
All­mikil lægð þokast með­fram landinu - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
All­mikil lægð þokast með­fram landinu - Vísir
Allmikil lægð er skammt suður af landinu og þokast hún austur með suðurströndinni. Lægðin verður komin austur af landinu í kvöld og dregur þá víða úr ...
Hverju er verið að mótmæla í Frakklandi?
📅 09.10.2026 👁️ 3
Hverju er verið að mótmæla í Frakklandi?
Mikil mótmæli hafa verið í Frakklandi undanfarna daga. Hundruð þúsunda hafa tekið þátt í þeim og þau hafa breiðst út um allt land.Mótmælin hófust meða...
Nína Richter skrifar: Trump og grænlensku mörgæsirnar
📅 09.10.2026 👁️ 3
Nína Richter skrifar: Trump og grænlensku mörgæsirnar
Mynd Forseti Bandaríkjanna er duglegur að koma sér í fréttirna
Kom, sá og sigraði í kosningu um sæti Starmers
📅 09.10.2026 👁️ 3
Kom, sá og sigraði í kosningu um sæti Starmers
Aukakosningar voru haldnar í Holborn og St. Pancras, kjördæmi Keir Starmers, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, í gær. Kosið var um sæti Starmers en S...
Vilja að Katla fari á elliheimili
📅 09.10.2026 👁️ 3
Vilja að Katla fari á elliheimili
Vilja að Katla fari á elliheimili Heil­brigð­is­ráðu­neyt­ið hef­ur þrýst á að Katla Guðna­dótt­ir, 24 ára göm­ul, velji sér hjúkr­un­ar­heim­ili til ...
Maðurinn skotinn af full­trúum ICE í New York - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Maðurinn skotinn af full­trúum ICE í New York - Vísir
Heimvarnaráðuneyti Bandaríkjanna, sem hefur yfirumsjón með ICE, staðfesti að fulltrúi ICE hefði hleypt af vopni sínu í aðgerð „til að handtaka glæpama...
Hægir vindar og stöku skúrir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Hægir vindar og stöku skúrir
Tiltölulega rólegt veður verður víðast hvar á landinu í dag með þeirri undantekningu að hvass vindur verður með norðausturströndinni fram eftir morgni...
Lokun einu innilaugar sveitar­fé­lagsins í­búum mikið á­fall - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Lokun einu innilaugar sveitar­fé­lagsins í­búum mikið á­fall - Vísir
Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, segir miður að ekki sé hægt að opna endurhæfingarsundlaug á Sauðárkróki eftir sumarlo...
Europe's top triathletes head to Tenerife for bank holiday weekend competition
📅 09.10.2026 👁️ 3
Europe's top triathletes head to Tenerife for bank holiday weekend competition
Some of Europe's leading triathletes are heading to Tenerife this weekend as Santa Cruz hosts the European Triathlon Cup. The international competitio...
Chris Mason: Questions remain for Green Party leader Zack Polanski
📅 09.10.2026 👁️ 3
Chris Mason: Questions remain for Green Party leader Zack Polanski
Senior party figures have criticised his response to a motion passed by members declaring Zionism a form of racism.
Maður réðst á annan og skemmdi bíl - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Maður réðst á annan og skemmdi bíl - Vísir
Málið er til rannsóknar. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom upp á varðsvæði lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköll...
Los Cristianos seafront renovation delayed again until 2027
📅 09.10.2026 👁️ 3
Los Cristianos seafront renovation delayed again until 2027
The long-awaited renovation of the Las Vistas beachfront promenade in Los Cristianos has been delayed again, with work now not expected to begin until...
20 þúsund manns gengu í minningu Maricarmen Abascal
📅 09.10.2026 👁️ 2
20 þúsund manns gengu í minningu Maricarmen Abascal
Að minnsta kosti 20 þúsund manns gengu fylktu liði eftir götum Madrídar í gærkvöldi til að minnast hinnar áttatíu og sjö ára gömlu Maricarmen Abascal ...
New DANA approaching the Canary Islands bringing rain and thunderstorms
📅 09.10.2026 👁️ 3
New DANA approaching the Canary Islands bringing rain and thunderstorms
A DANA weather system is approaching the Canary Islands, bringing an increased risk of rain, locally heavy showers and isolated thunderstorms across t...
Bíla­stæði eða bekkir og blóma­pottar? - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Bíla­stæði eða bekkir og blóma­pottar? - Vísir
Guðný María Jóhannsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur og Brynhildur Bolladóttir formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl hittu frét...
Heilsuspillandi mengun dreifist víða frá skógareldum í Indónesíu
📅 09.10.2026 👁️ 3
Heilsuspillandi mengun dreifist víða frá skógareldum í Indónesíu
Skógareldar hafa logað í Indónesíu vikum saman og þykkur reykjarmökkur hefur borist yfir til Malasíu, Singapore og Filippseyja. Erfiðlega gengur að he...
Hoads Wood illegal waste "supersite" finally cleared at £15m cost
📅 09.10.2026 👁️ 3
Hoads Wood illegal waste "supersite" finally cleared at £15m cost
Concerns remain over the ancient Kent woodland's future after 39,500 tonnes of rubbish were cleared.
Zack Polanski faces greatest crisis of his leadership so far
📅 09.10.2026 👁️ 3
Zack Polanski faces greatest crisis of his leadership so far
The Green leader faces pressure over his response to a party motion declaring Zionism a form of racism, as well as his by-election loss.
As freezing winter approaches, Kyiv residents look for shelter elsewhere
📅 09.10.2026 👁️ 4
As freezing winter approaches, Kyiv residents look for shelter elsewhere
A renewed Russian campaign of strikes on power and energy infrastructure has made some contemplate leaving Ukraine's capital.
Russian strikes and approaching winter force many in Kyiv to pack bags and flee
📅 09.10.2026 👁️ 1
Russian strikes and approaching winter force many in Kyiv to pack bags and flee
A renewed Russian campaign of strikes on power and energy infrastructure has made some contemplate leaving Ukraine's capital.
Telja að tvær vikur séu eftir af síldarvertíðinni
📅 09.10.2026 👁️ 4
Telja að tvær vikur séu eftir af síldarvertíðinni
Síldarvertíðin gengur vel og fiskurinn er verkaður allan sólarhringinn hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Unnið er á tveimur tólf tíma vöktum og er...
Mamdani vill ICE-liða á brott eftir að maður var skotinn
📅 09.10.2026 👁️ 3
Mamdani vill ICE-liða á brott eftir að maður var skotinn
Zohran Mamdani, borgarstjóri New York-borgar, og heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna hafa staðfest að liðsmenn tolla- og innflytjendaeftirlitsstofnunar...
Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
📅 09.10.2026 👁️ 4
Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
Sendinefnd Úkraínu fundar með fulltrúum Bandaríkjastjórnar og evrópskum embættismönnum í Miami á Flórída í dag. Tilefni fundarins er að ræða nýjar hug...
ICE agent shoots man in New York City
📅 09.10.2026 👁️ 5
ICE agent shoots man in New York City
The Department of Homeland Security said ICE was arresting a "criminal illegal alien"; New York's mayor called it "unconscionable".
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
📅 09.10.2026 👁️ 5
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að rannsaka neikvæð áhrif bólusetninga, þar á meðal með opn...
Robert Kennedy yngri hyggst opna rannsóknamiðstöð um bólusetningar
📅 09.10.2026 👁️ 3
Robert Kennedy yngri hyggst opna rannsóknamiðstöð um bólusetningar
Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að rannsaka neikvæð áhrif bólusetninga, þar á meðal með opn...
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
📅 09.10.2026 👁️ 5
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
Það var tilfinningarík stund þegar þúsundir hermanna um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Abraham Lincoln komu í land í San Diego í Kaliforníu í gær ...
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
📅 09.10.2026 👁️ 4
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
Maður var skotinn í New York í dag en fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, hafi átt hlut að máli.Kat...
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina...
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið. Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tó...
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál...
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
A new film paints the Meta founder as a villain. But the tech firm seems immune to bad publicity, writes our North America tech correspondent.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
📅 08.10.2026 👁️ 4
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire speaks to BBC from Ukrainian prison
📅 08.10.2026 👁️ 4
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire speaks to BBC from Ukrainian prison
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
📅 08.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
Viewers watched to see whether Richard E Grant could save himself at the first round table of the series.
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
📅 08.10.2026 👁️ 4
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
The UK's data watchdog is investigating a spike in complaints about "robo calls" that appear to lead to a recruitment scam.
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
📅 08.10.2026 👁️ 5
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
The review, which focuses on younger age groups, warned there was a risk society was moving from an era of under-diagnosis to over-diagnosis or mis-di...
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 4
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...