Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum - Vísir

Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum - Vísir

Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum - Vísir

Friðrik Ómar er samkynhneigður og hefur ekki farið leynt með það. Í seinni tíð hið minnsta.

„Ég myndi segja að ég hafi komið frekar seint úr skápnum. Ég var orðinn 25 ára gamall.“

Já, þú hefur verið orðinn þetta gamall?

„Já, það eru bara örfá ár síðan,“ segir Friðrik og hlær.

„Pabbi, ég hérna, ég þarf að segja þér svolítið“

Viðtalið sem hér birtist er brot úr Í bóli Bjarnars sem er á dagskrá Bylgjunnar klukkan níu komandi sunnudag en þar er Friðrik Ómar gestur. Bráðfjörugt viðtalið verður aðgengilegt í kjölfarið á helstu hlaðvarpsveitum og á Vísi.

Af hverju komstu ekki fyrr úr skápnum?

„Það er mjög góð spurning. Þegar ég hugsa til baka þá einhvern veginn böggaði þetta mig ekki mikið. Ég var náttúrulega úti á landi, ég var á Dalvík og Akureyri og það er náttúrulega engin „sena“ þar. 

Hér getur að líta brot úr brjáðfjörugu viðtali við Friðrik Ómar sem birtist í heild sinni á Bylgjunni klukkan níu, áður en Sprengisandur hefst.vísir/anton brink

Ég man að ég kom fyrst suður svona 21 árs og kíkti þá á djammið með Heru Björk vinkonu minni. Þá fyrst fór ég inn á gay-stað og var að átta mig aðeins á þessu. Ég var búinn að segja mömmu þetta en geymdi mér pabba. Hann var sá síðasti í mínum hring sem ég sagði frá.“

Hvers vegna var það?

„Ég var einkabarnið og það er svolítið þannig með okkur í hinsegin senunni að það er oft einhver einn sem stoppar mann af, skilurðu? Eða maður notar sem stoppara. En þetta var mjög mögnuð stund. Hann sat inni í stofu heima og var að tefla, hann er mikill skákmaður og ég bara segi: Pabbi, ég hérna, ég þarf að segja þér svolítið.

Hann var bara: Já?

Þetta er 2006.

Og ég segi: Pabbi, ég hérna er samkynhneigður.

Hann horfði niður og sagði þá: Jæja, þá er maður útdauður með það sama.“

Varð perluvinur kærasta Friðriks

Friðrik segist hafa farið að hlæja. Aðstæður buðu ekki upp á annað.

„Þetta varð aldrei neitt atriði fyrir honum sko. Ég eignaðist kærasta og við vorum saman í mörg ár og þeir urðu perluvinir. Þannig að það var aldrei neitt vesen. Þannig að ég var í rauninni kannski búinn að ofhugsa þetta eins og við gerum mörg. 

Friðrik Ómar segir að samband þeirra feðga hafi verið flókið. Hann náði að sætta sig við það og sjá kómísku hliðarnar á því.vísir/Anton Brink

Af hverju gerði ég þetta ekki fyrr? Þú veist. Þess vegna hef ég oft hvatt menn sem hafa haft samband við mig í einkaskilaboðum að stíga skrefið. En þetta er auðvitað svo misjafnt hjá okkur öllum hvenær við finnum það hjá okkur að vera tilbúin.“

Já, heldurðu að hann hafi haft talsvert með það að gera að þú kemur ekki fyrr út úr skápnum en raun ber vitni?

„Já, alveg slatta sko.“

Og svo kannski haft eitthvað með það að gera að þú ert úti á landi?

„Já, ég myndi alveg segja að það hafi haft sitt að segja.“

Upplifðirðu þig þá sem the only gay in the village?

„Nei, varla. Og ég sver það. Ég man ekki einu sinni hvort ég hafi eitthvað verið að hugsa, 18, 19 ára gamall, hvort ég væri eitthvað skotinn í einhverjum strákum. Ég var bara einhvern veginn í einhverju öðru. Skilurðu mig? Þannig að þetta vafðist aldrei neitt svakalega fyrir mér en svo flyt ég suður og þá svona fer boltinn að rúlla.“

Beinskeyttur og hömlulaus í kjaftinum

Faðir Friðriks Ómars andaðist 4. júní á þessu ári og blessuð sé minning hans. Friðrik hélt jarðarför á Akureyri sem var mikil tónlistarveisla.

„Já. Pabbi fylgdist vel með því sem ég var að gera og með fólkinu sem ég var að vinna með. Hann var alltaf í miklum samskiptum við þau. Var svona bak við, að labba um og svona. Þetta blundaði í honum sjálfum að vera á sviði. Hann var mikið að leika og syngja og spila á trommur í gamla daga.“

Þannig að Friðrik ákvað að kalla til sitt samstarfsfólk.

„Já, þetta fólk sem hefur verið með mér hvað mest og þetta var tónlistarveisla. Og mjög létt verk í raun og skemmtilegt. Ég fékk Odd Bjarna Þorkelsson sem jarðsöng en þeir voru gamlir félagar úr sveitinni. Þetta var mjög heimilislegt.“

Friðrik Ómar Hjörleifsson segir að stundum, fyrr á tímum, hafi slegið í brýnu milli þeirra feðga en þeir náðu góðum tíma saman áður en faðir hans andaðist.vísir/anton brink

Friðrik Ómar segir spurður að faðir hans hafi verið einstakur.

„Já, hann var grjótharður Miðflokksmaður. Út af Simma, Trump og Pútín.“

Já!

„Það voru hans menn. Það var stundum erfitt að sitja undir því. Ég skal viðurkenna það. Hann lét í sér heyra á samfélagsmiðlum og hans kvót var alltaf eftir hvern status: „Veljum íslenzkt“ með zetu. Og ég setti það reyndar á kistuna hans. Hún var máluð fagurgræn og þegar henni var snúið í kirkjunni mátti sjá áletrun: „Veljum íslenzkt“. Í hans anda. En hann var mjög svona, já, beinskeyttur og hömlulaus í kjaftinum.“

Hann elskaði Trump og því fékk ekkert breytt

Á stundum sló í brýnu milli feðganna. Friðrik Ómar segir að honum hafi ekki alltaf þótt gott að vera í kringum þetta viðmót og þessar skoðanir sem faðir hans var óspar á að tjá.

„En síðastliðin tíu ár eða svo höfðum við verið rosalega flottir. Hann fær sem sagt Covid í júlí 2023 og vildi ekki sprauta sig. Ég var brjálaður út í hann en hann veiktist illa og náði sér aldrei upp frá því. Hann fékk svo rosalega í lungun.“

Faðir Friðriks Ómars varð 82 ára, hann var fæddur 14. mars 1944.

„Svo sætti ég mig bara einhvern veginn við þetta, þú veist, ég var ekki að fara að breyta pabba. Og það reyndist mikið frelsi fyrir mig. Þannig að þá náðum við ágætis og góðum tíma saman.“

Þú segist hafa horfst í augu við að þú myndir ekki breyta honum en breytti það honum í engu þegar þú komst út úr skápnum?

„Tjahh, það er lýsandi þegar við sátum og vorum að horfa á sjónvarpið. Þar var verið að greina frá auknum réttindum hinsegin fólks og þá segir hann: Er ekki komið nóg af réttindum fyrir þennan hóp? Þá sagði ég: En, pabbi, þú veist að ég er hinsegin? „Ja, það er allt annað mál,“ sagði hann þá. Og þannig var þetta með hann, ég myndi aldrei geta lagað afstöðu hans. Ég varð bara að mæta honum og leyfa honum að elska Trump og leyfa honum að elska Pútín.“

Elskaði hann Trump?

„Já, dýrkaði hann. Trump var bara aðalmaðurinn, þorir þegar aðrir þegja og gerir og það var kraftur í honum. Þetta reyndi svolítið á en svo fór ég bara að sjá kómíkina í þessu öllu saman. Já, og líka bara svona kannski þessi kynslóð og hans bakgrunnur bauð ekki upp á það að skilja núansana í þessu öllu.“

Friðrik Ómar er sjötti viðmælandinn Í bóli Bjarnars. Fyrri viðtöl má sjá að neðan.

#ekki #geta #sig #sætti #við

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262945834d/saetti-sig-vid-ad-geta-ekki-breytt-pabba-sinum

📰 Aðrar fréttir

Beitti ákveðinni og sjarmerandi aðferð til að hreppa hlutverkið í Titanic
📅 09.10.2026 👁️ 1
Beitti ákveðinni og sjarmerandi aðferð til að hreppa hlutverkið í Titanic
Breska leikkonan Kate Winslet beitti sjarmerandi en jafnframt „ákveðinni“ aðferð til að sannfæra leikstjórann James Cameron eftir að hún hafði farið í...
Vildi ekki útskýra hvers vegna hún fletti níu sinnum upp í sjúkraskrá án leyfis
📅 09.10.2026 👁️ 1
Vildi ekki útskýra hvers vegna hún fletti níu sinnum upp í sjúkraskrá án leyfis
Kona sem starfar á Landspítalanum braut lög þegar hún fletti upp í sjúkraskrá annarrar konu án leyfis og án þess að það tengdist starfi hennar á nokku...
Yfir sjö­tíu þúsund mót­mæltu þrátt fyrir umbótatillögur - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Yfir sjö­tíu þúsund mót­mæltu þrátt fyrir umbótatillögur - Vísir
Mótmælin hófust 17. september í úthverfi Parísarborgar en hafa dreifst út um allt land. Mikill fjöldi nemenda, kennara, foreldra og annarra sem styðja...
Veð­mál á sigur Navalnaju hrúgast inn - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Veð­mál á sigur Navalnaju hrúgast inn - Vísir
Navalnaja þykir nú sigurstranglegust samkvæmt Polymarket, veðmálasíðunni umdeildu. Líkur þar eru ekki ákveðnar af veðmangara heldur veðja notendur síð...
€400,000 immersive Christmas attraction planned for Maspalomas
📅 09.10.2026 👁️ 2
€400,000 immersive Christmas attraction planned for Maspalomas
A new immersive Christmas attraction costing just over €400,000 is planned for Maspalomas in Gran Canaria this festive season. The attraction will pro...
Everton owners The Friedkin Group consider selling club
📅 09.10.2026 👁️ 1
Everton owners The Friedkin Group consider selling club
Everton owners the Friedkin Group are exploring the sale of the club less than two years after taking control.
Læknir setti fóstureyðingarlyf í mat barnshafandi kærustu – Gæti nú misst ríkisborgararéttinn
📅 09.10.2026 👁️ 1
Læknir setti fóstureyðingarlyf í mat barnshafandi kærustu – Gæti nú misst ríkisborgararéttinn
Læknir sem setti fóstureyðingarlyf í hafragraut barnshafandi kærustu sinnar hefur nú verið sakfelldur fyrir að afla sér bandarísks ríkisborgararéttar ...
Rétttrúnaðarkirkjan og múslimar missa lóðirnar
📅 09.10.2026 👁️ 2
Rétttrúnaðarkirkjan og múslimar missa lóðirnar
Borgarráð samþykkti í gær að afturkalla úthlutun tveggja lóða sem trúfélög fengu fyrir meira en áratug.Rússneska rétttrúnaðarkirkjan á Íslandi, söfnuð...
How to get the best out of a long airport layover
📅 09.10.2026 👁️ 1
How to get the best out of a long airport layover
The first flight is behind you. The next one leaves in five, seven or nine hours, and sitting by the gate for all of it makes very little sense. Sorry...
Digger grefur sína eigin gröf - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 2
Digger grefur sína eigin gröf - Vísir
Digger er nýjasta kvikmynd mexíkóska leikstjórans Alejandro González Iñárritu sem hefur áður gert kvikmyndir á borð við Revenant (2015), Birdman (2014...
All­mikil lægð þokast með­fram landinu - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
All­mikil lægð þokast með­fram landinu - Vísir
Allmikil lægð er skammt suður af landinu og þokast hún austur með suðurströndinni. Lægðin verður komin austur af landinu í kvöld og dregur þá víða úr ...
Hverju er verið að mótmæla í Frakklandi?
📅 09.10.2026 👁️ 3
Hverju er verið að mótmæla í Frakklandi?
Mikil mótmæli hafa verið í Frakklandi undanfarna daga. Hundruð þúsunda hafa tekið þátt í þeim og þau hafa breiðst út um allt land.Mótmælin hófust meða...
Nína Richter skrifar: Trump og grænlensku mörgæsirnar
📅 09.10.2026 👁️ 3
Nína Richter skrifar: Trump og grænlensku mörgæsirnar
Mynd Forseti Bandaríkjanna er duglegur að koma sér í fréttirna
Kom, sá og sigraði í kosningu um sæti Starmers
📅 09.10.2026 👁️ 3
Kom, sá og sigraði í kosningu um sæti Starmers
Aukakosningar voru haldnar í Holborn og St. Pancras, kjördæmi Keir Starmers, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, í gær. Kosið var um sæti Starmers en S...
Vilja að Katla fari á elliheimili
📅 09.10.2026 👁️ 3
Vilja að Katla fari á elliheimili
Vilja að Katla fari á elliheimili Heil­brigð­is­ráðu­neyt­ið hef­ur þrýst á að Katla Guðna­dótt­ir, 24 ára göm­ul, velji sér hjúkr­un­ar­heim­ili til ...
Maðurinn skotinn af full­trúum ICE í New York - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Maðurinn skotinn af full­trúum ICE í New York - Vísir
Heimvarnaráðuneyti Bandaríkjanna, sem hefur yfirumsjón með ICE, staðfesti að fulltrúi ICE hefði hleypt af vopni sínu í aðgerð „til að handtaka glæpama...
Hægir vindar og stöku skúrir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Hægir vindar og stöku skúrir
Tiltölulega rólegt veður verður víðast hvar á landinu í dag með þeirri undantekningu að hvass vindur verður með norðausturströndinni fram eftir morgni...
Lokun einu innilaugar sveitar­fé­lagsins í­búum mikið á­fall - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Lokun einu innilaugar sveitar­fé­lagsins í­búum mikið á­fall - Vísir
Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, segir miður að ekki sé hægt að opna endurhæfingarsundlaug á Sauðárkróki eftir sumarlo...
Europe's top triathletes head to Tenerife for bank holiday weekend competition
📅 09.10.2026 👁️ 3
Europe's top triathletes head to Tenerife for bank holiday weekend competition
Some of Europe's leading triathletes are heading to Tenerife this weekend as Santa Cruz hosts the European Triathlon Cup. The international competitio...
Chris Mason: Questions remain for Green Party leader Zack Polanski
📅 09.10.2026 👁️ 3
Chris Mason: Questions remain for Green Party leader Zack Polanski
Senior party figures have criticised his response to a motion passed by members declaring Zionism a form of racism.
Maður réðst á annan og skemmdi bíl - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Maður réðst á annan og skemmdi bíl - Vísir
Málið er til rannsóknar. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom upp á varðsvæði lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköll...
Los Cristianos seafront renovation delayed again until 2027
📅 09.10.2026 👁️ 3
Los Cristianos seafront renovation delayed again until 2027
The long-awaited renovation of the Las Vistas beachfront promenade in Los Cristianos has been delayed again, with work now not expected to begin until...
20 þúsund manns gengu í minningu Maricarmen Abascal
📅 09.10.2026 👁️ 2
20 þúsund manns gengu í minningu Maricarmen Abascal
Að minnsta kosti 20 þúsund manns gengu fylktu liði eftir götum Madrídar í gærkvöldi til að minnast hinnar áttatíu og sjö ára gömlu Maricarmen Abascal ...
New DANA approaching the Canary Islands bringing rain and thunderstorms
📅 09.10.2026 👁️ 3
New DANA approaching the Canary Islands bringing rain and thunderstorms
A DANA weather system is approaching the Canary Islands, bringing an increased risk of rain, locally heavy showers and isolated thunderstorms across t...
Bíla­stæði eða bekkir og blóma­pottar? - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Bíla­stæði eða bekkir og blóma­pottar? - Vísir
Guðný María Jóhannsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur og Brynhildur Bolladóttir formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl hittu frét...
Heilsuspillandi mengun dreifist víða frá skógareldum í Indónesíu
📅 09.10.2026 👁️ 3
Heilsuspillandi mengun dreifist víða frá skógareldum í Indónesíu
Skógareldar hafa logað í Indónesíu vikum saman og þykkur reykjarmökkur hefur borist yfir til Malasíu, Singapore og Filippseyja. Erfiðlega gengur að he...
Hoads Wood illegal waste "supersite" finally cleared at £15m cost
📅 09.10.2026 👁️ 3
Hoads Wood illegal waste "supersite" finally cleared at £15m cost
Concerns remain over the ancient Kent woodland's future after 39,500 tonnes of rubbish were cleared.
Zack Polanski faces greatest crisis of his leadership so far
📅 09.10.2026 👁️ 3
Zack Polanski faces greatest crisis of his leadership so far
The Green leader faces pressure over his response to a party motion declaring Zionism a form of racism, as well as his by-election loss.
As freezing winter approaches, Kyiv residents look for shelter elsewhere
📅 09.10.2026 👁️ 4
As freezing winter approaches, Kyiv residents look for shelter elsewhere
A renewed Russian campaign of strikes on power and energy infrastructure has made some contemplate leaving Ukraine's capital.
Russian strikes and approaching winter force many in Kyiv to pack bags and flee

Telja að tvær vikur séu eftir af síldarvertíðinni
📅 09.10.2026 👁️ 4
Telja að tvær vikur séu eftir af síldarvertíðinni
Síldarvertíðin gengur vel og fiskurinn er verkaður allan sólarhringinn hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Unnið er á tveimur tólf tíma vöktum og er...
Mamdani vill ICE-liða á brott eftir að maður var skotinn
📅 09.10.2026 👁️ 3
Mamdani vill ICE-liða á brott eftir að maður var skotinn
Zohran Mamdani, borgarstjóri New York-borgar, og heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna hafa staðfest að liðsmenn tolla- og innflytjendaeftirlitsstofnunar...
Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
📅 09.10.2026 👁️ 4
Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
Sendinefnd Úkraínu fundar með fulltrúum Bandaríkjastjórnar og evrópskum embættismönnum í Miami á Flórída í dag. Tilefni fundarins er að ræða nýjar hug...
ICE agent shoots man in New York City
📅 09.10.2026 👁️ 5
ICE agent shoots man in New York City
The Department of Homeland Security said ICE was arresting a "criminal illegal alien"; New York's mayor called it "unconscionable".
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
📅 09.10.2026 👁️ 5
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að rannsaka neikvæð áhrif bólusetninga, þar á meðal með opn...
Robert Kennedy yngri hyggst opna rannsóknamiðstöð um bólusetningar

Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
📅 09.10.2026 👁️ 5
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
Það var tilfinningarík stund þegar þúsundir hermanna um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Abraham Lincoln komu í land í San Diego í Kaliforníu í gær ...
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
📅 09.10.2026 👁️ 4
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
Maður var skotinn í New York í dag en fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, hafi átt hlut að máli.Kat...
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir

Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina...
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið. Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tó...
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál...
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
A new film paints the Meta founder as a villain. But the tech firm seems immune to bad publicity, writes our North America tech correspondent.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
📅 08.10.2026 👁️ 4
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire speaks to BBC from Ukrainian prison

Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
📅 08.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
Viewers watched to see whether Richard E Grant could save himself at the first round table of the series.
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
📅 08.10.2026 👁️ 4
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
The UK's data watchdog is investigating a spike in complaints about "robo calls" that appear to lead to a recruitment scam.
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
📅 08.10.2026 👁️ 5
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
The review, which focuses on younger age groups, warned there was a risk society was moving from an era of under-diagnosis to over-diagnosis or mis-di...
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 4
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...