„Ég er búinn að vita af hjartveiki sem ég hef verið með síðustu tólf ár. Svo fyrir tæpu ári síðan fékk ég nýtt hjarta,“ segir Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í einlægu viðtali í þættinum Segðu mér á Rás 1. Þar fer hann meðal annars yfir tilfinningarússíbanann sem fylgdi því að fá nýtt hjarta og þannig nýtt líf.
Rögnvaldur fékk nýtt hjarta: „Ég þurfti að horfast í augu við að ég var að deyja“