Hellisheiðin verður lokuð fyrir umferð í vesturátt í dag þar sem verið er að malbika veginn. Vegfarendum er bent á hjáleið um Þrengslin.
Í kvöld hefjast framkvæmdir á Reykjanesbraut milli Kaplakrika og Kauptúns. Þær standa frá klukkan átta í kvöld til fjögur síðdegis á morgun. Lokað verður fyrir vinstri beygju á gatnamótum við Álftanesveg.