Navi Pillay fær friðarverðlaun Nóbels
Suðurafríski lögfræðingurinn Navanethem „Navi“ Pillay er nýr friðarverðlaunahafi Nóbels. Hún var mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna og hefur gegnt lykilhlutverkum við alþjóðlega sakamáladómstóla. Hún varði andstæðinga aðskilnaðarstefnunnar í heimalandi sínu og hefur um áratuga skeið unnið að vernd mannréttinda.
Navanethem „Navi“ Pillay, fyrrverandi mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna og forseti Alþjóðlega sakamáladómstólsins fyrir Rúanda, hlýtur friðarverðlaun Nóbels árið 2026.
Norska Nóbelsnefndin tilkynnti um ákvörðunina í morgun. Samkvæmt fyrstu fréttum eru verðlaunin veitt fyrir framlag hennar til friðar og alþjóðaréttar.
Navi hefur meðal annars starfað sem dómari við Alþjóðlega sakamáladómstólinn í Haag og dómari. Áður starfaði hún sem lögmaður í Suður-Afríku á tímum aðskilnaðarstefnunnar og varði meðal annars baráttufólk sem sætti ofsóknum stjórnvalda. Árið 1967 varð hún fyrsta konan til að stofna eigin lögmannsstofu í Natal-héraði.
Navi gegndi embætti mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna frá 2008 til 2014.