Heimvarnaráðuneyti Bandaríkjanna, sem hefur yfirumsjón með ICE, staðfesti að fulltrúi ICE hefði hleypt af vopni sínu í aðgerð „til að handtaka glæpamann sem dvelur ólöglega í landinu“. Í yfirlýsingu, sem BBC greinir frá, segir að maðurinn sé á lífi og á sjúkrahúsi í nágrenninu.
Einnig kemur fram að maðurinn væri frá Dóminíska lýðveldinu og hefði „áður hlotið dóm fyrir stórfelldan þjófnað og margsinnis verið handtekinn fyrir líkamsárás, rán, fíkniefnavörslu og vopnaburð“. Einnig er því haldið fram að maðurinn tengdist Trinitarios, sem bandaríska dómsmálaráðuneytið lýsir sem fjölþjóðlegum glæpasamtökum.
Zohran Mamdani, borgarstjóri New York-borgar, gagnrýnir atvikið.
„Fyrstu fregnir benda til þess að fulltrúar hafi umkringt hann og fimm ára barn í bíl hans áður en þeir skutu mörgum skotum. Við teljum að barnið hafi ekki hlotið líkamlegan skaða,“ sagði Zohran og bætti við að um væri að ræða „óforsvaranlegt og gríðarlega alvarlegt ástand“.
Hann ætli ekki að standa aðgerðalaus og ætlar að biðja Trump um að binda enda á aðgerðir ICE í borginni.
Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, sagðist hafa rætt við Donald Trump Bandaríkjaforseta um skotárásina og lýst yfir hneykslan. Hún hafi einnig farið fram á að gera allar upptökur úr búkmyndavélum fulltrúa ICE opinberar. Trump hefur ekki tjáð sig opinberlega um málið.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fulltrúar ICE skjóta borgara Bandaríkjanna og hafa nokkrir þeirra látist. Þar á meðal var hin 37 ára gamla Renee Good sem var skotin í höfuðið í bíl sínum í byrjun árs.