Frásögn manns af atviki sem átti sér stað í Vesturbæjarlaug í Reykjavík í gær hefur vakið töluverða athygli á Facebook-síðu íbúa í Vesturbænum.Þar er greint frá því að tveir unglingspiltar hafi lagt yngri dreng í einelti með þeim afleiðingum að hann hljóp grátandi inn í búningsklefa. Vitni að atvikinu segist undrandi á því að fullorðið fólk sem var á staðnum hafi ekki gripið inn í.Í færslu á Facebook lýsir vitnið því sem það sá í sundlauginni. Yngri drengurinn hafi verið um 11 til 12 ára gamall en þeir eldri á aldrinum 14 til 16 ára.
Yngri drengur sagður hafa orðið fyrir aðkasti í Vesturbæjarlaug – Vitni furðar sig á viðbrögðum fullorðinna