Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12 og við verðum í beinni frá höfuðstöðvunum.
Formaður VR segir skrýtið að standa í metingi við leiðtoga verkalýðsfélaga um niðurstöður kjarasamninga og að það sé rangt að ekkert hafi breyst frá því breiðfylkingin samdi á þriðjdag og þar til VR skrifaði undir samning í gær. Hún segir afskipti formanns Eflingar af innra starfi VR vera með ólíkindum.
Forsætisráðherra segir að aðkoma ríkisins að lyktum málsins muni kosta 1,6 milljarða króna, samanborið við tugmilljarða króna kostnað við fyrri aðgerðapakka ríkisins í kjaramálum.
Endurheimt bílastæða sem koma í stað bekkja og blómapotta í miðborg Reykjavíkur er áhyggjuefni að mati formanns Samtaka um bíllausan lífsstíls. Formaður umhverfis-og skipulagsráðs borgarinnar segir um eðlilega ráðstöfun að ræða fyrir veturinn. Báðir formenn eru opnir fyrir frekara samtali um málið.
Í dag er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sýndur á Sýn og Vísi í kvöld.