Hann keypti einnig hlutabréf fyrir allt að sex milljónir í Microsoft og fyrir minni upphæð í tæknifyrirtækinu Oracle.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í fjárhagsyfirlýsingu forsetans fyrir ágúst. Samkvæmt greiningu CNBC keypti eða seldi forsetinn hlutabréf og skuldabréf fyrir allt frá 74,3 milljónum dala til 273,3 milljóna dala í mánuðinum.
Þá keypti hann einnig fimm ára skuldabréf SpaceX fyrir að minnsta kosti milljón dala en allt að fimm milljónir. Tveimur dögum síðar skrifaði hann undir nýja stefnuyfirlýsingu sem felst í því að reyna að draga úr reglugerðum varðandi einkafyrirtæki. Þar er einnig kallað eftir því að bandaríska ríkið styðji einkafyrirtæki í að skjóta að minnsta kosti þúsund geimförum út í geim á ári hverju fyrir árið 2030.
Meðal annars á þessi stuðningur að vera í formi aðgangs að geimferðainnviðum ríkisins, í hvatningu til fjárfestinga í geimfyrirtækjum og samvinnu einkafyrirtækja og opinbera geirans í uppbyggingu innviða.
SpaceX á í gífurlega miklum viðskiptum við bæði varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og Geimvísindastofnunina (NASA).
Heiðraði leiðtoga tæknifyrirtækja
Einn talsmanna Trumps sagði í yfirlýsingu til CNN að Trump kæmi með engum hætti að viðskiptum sem þessum. Þeim væri stýrt af utanaðkomandi aðilum og að Trump og fjölskylda hans hefðu ekki áhrif á það hvað væri keypt og hvað væri selt.
Á sínu seinna kjörtímabili hefur Trump ítrekað kallað eftir því að reglur um bandarísk tæknifyrirtæki verði felldar niður eða forsvarsmönnum þeirra gert kleift að setja sínar eigin reglur.
Fyrr í þessari viku tók hann á móti mörgum af leiðtogum þessara fyrirtækja, og þar á meðal Elon Musk forstjóra SpaceX, og heiðraði þá. Aðrir sem voru heiðraðir voru Jensen Huang forstjóri Nvidia, Satya Nadella forstjóri Microsoft og Michael Dell forstjóri Dell.
Fyrri forsetar Bandaríkjanna hafa oftar en ekki selt sínar eigur þegar þeir taka við embætti og sett peninga sína í sérstakan sjóð sem þeir geta engin áhrif haft á. Það hefur Trump ekki gert.
Síðan hann varð forseti Bandaríkjanna á nýjan leik hefur auður Trumps aukist til muna. Samkvæmt greiningu Forbes var hann til að mynda metinn á 2,6 milljarða dala árið 2023. Hann er nú metinn á sjö milljarða dala. Það samvarar um 856 milljörðum króna.