Samkeppniseftirlitið framkvæmdi í morgun húsleit í höfuðstöðvum Beru hf., móðurfélagi Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf.Bera greindi frá málinu í kauphallartilkynningu á tíunda tímanum í morgun. Þar kom fram að húsleitin tengdist ætluðum brotum á 11. grein samkeppnislaga sem bannar misnotkun á markaðsráðandi stöðu.Af þessu tilefni vill Samkeppniseftirlitið taka fram að það hafi hafið rannsókn á háttsemi Beru hf., dótturfélagsins Ölgerð Egils Skallagrímssonar og öðrum tengdum félögum á drykkjarvörumarkaði.
Þess vegna fór Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá Ölgerðinni í morgun