Íslandsbanka hafa borist tilkynningar um svikatilraunir þar sem hringt er í viðskiptavini bankans og hringjendur gefa sig út fyrir að starfa hjá bankanum.Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.„Íslandsbanki varar við þessum símtölum og hvetur viðskiptavini til að samþykkja ekki óvæntar beiðnir um auðkenningu með rafrænum skilríkjum.“Í tilkynningunni kemur fram að í símtölunum sé því haldið fram að grunsamleg virkni eða innskráning hafi átt sér stað í netbanka viðskiptavinar. Viðkomandi sé í kjölfarið beðinn um að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.
Viðskiptavinir Íslandsbanka varaðir við – Ekki falla í þessa gildru