Fréttamaðurinn Tómas Arnar Þorláksson leit bak við tjöldin við gerð afmælisþáttarins og ræddi við nokkra vel valda. Þeirra á meðal var auðvitað Vala Matt, sem hefur fylgt stöðinni frá upphafi, með hléum hjá öðrum miðlum.
Fjörutíu ára afmæli, hvernig leggst þetta í þig?
„Þetta er dásamlegt og ég er svo stolt af þessu fyrirtæki. Ég segi alltaf Stöð 2-Sýn af því þetta er byggt á gömlu Stöð 2 en að þetta skuli vera fjörutíu ár, það er náttúrulega kraftaverk,“ segir Vala Matt.
Hefði þig órað fyrir þessu þegar þið hófuð þessa vegferð?
„Veistu það, við spáðum ekkert í það þá, við vorum bara í núinu og það var ógeðslega gaman og ævintýri. Og þetta er búið að vera ævintýri öll þessi ár,“ segir hún.
Hún segir að þessi tímamót og 40 ára afmæli hefðu komið mörgum á óvart á sínum tíma enda þó nokkuð um efasemdarmenn á sínum tíma. Vala var auðvitað mætt með græna pennan, einkennismerkið sem hún hefur borið í sjónvarpinu í mörg ár.
Þarf ég að fá mér svona penna?
„Það er spurning hvort ég láti þig fá pennann þannig þú takir hann og haldir áfram með hann,“ segir Vala.
„Þetta var ekkert grín“
Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi, er auðvitað ekki langt undan og tók með sér sérstakan minjagrip í tilefni dagsins.
„Þetta er handrið úr Fokker-flugvél sem ég braut eftirminnilega í Idol á Akureyri einu sinni. Þá vorum við að labba út úr flugvélinni og ég renndi mér niður handriðið,“ segir Simmi.
Hann og Jói voru þá að taka upp efni fyrir sjónvarpsþáttinn til að segja áhorfendum frá því að verið væri að taka áheyrnaprufur á Akureyri.
„Við vorum búnir að gera þetta þrisvar, Jói klikkaði alltaf á textanum og í fjórða skiptið þá brotnaði handriðið. Þar sem þetta handrið er öryggisbúnaður flugvélarinnar þá gat hún ekki farið til baka. Þannig það þurfti að koma flugvirki frá Reykjavík, gera við þetta og fá samþykki frá Fokker í Hollandi til þess að fá að fljúgja henni til Reykjavíkur. Svo þurfti að bíða eftir þessum varahlutum þannig þetta varð milljónatjón, þannig þetta var ekkert grín,“ segir Simmi.
„Síðan einhverjum vikum seinna færði Árni, forstjóri flugvélsins á þeim tíma, mér þetta handrið: „Idiot 2003. Sigmar Vilhjálmsson heiðursfarþegi.“,“ bætir hann við.
Hér að neðan má sjá bak við tjöldin við gerð afmælisþáttarins: