Ekki var krafist frekara gæsluvarðhalds yfir athafnamanni á sextugsaldri sem handtekinn var við komu til landsins frá Portúgal þann 4. október.Þess í stað var krafist tveggja vikna farbanns yfir manninum, til 23. október. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu og varðar rannsókn á umfangsmiklum fíkniefnalaga- og peningaþvættisbrotum. Sex aðrir voru í gæsluvarðhaldi vegna málsins en voru látnir lausir fyrr í vikunni.
Athafnamaðurinn látinn laus en settur í farbann