Leigjendur tjalda á torgum, nemendur loka aðgangi að skólum og tugþúsundir ganga út á götur. Mótmæli hafa undanfarna vikur sett svip sinn á fjölda Evrópuríkja þar sem húsnæðisvandi, dýrtíð, skólamál og innflytjendastefna eru meðal helstu ágreiningsefna.
Tilefnin eru ólík eftir löndum en sumar hreyfingarnar sækja beinlínis innblástur hver til annarrar eða eru beintengd. Hollenskir baráttumenn fyrir betri húsnæðismarkaði horfa til Spánar og belgískir nemendur til Frakklands.
Húsnæðisvandi á Spáni og í Hollandi
Á Spáni hafa tugþúsundir mótmælt hækkandi húsnæðiskostnaði og stöðu leigjenda. Mótmælin fór fyrst á flug kraft eftir að 87 ára kona var borin út af heimili sínu í Madríd í september. Tjaldbúðir hafa verið reistar á Puerta del Sol torgi og mótmæli farið fram í meira en 50 borgum og bæjum.

Í Hollandi segir húsnæðishreyfingin Woonopstand að aðgerðirnar á Spáni hafi aukið baráttuviljann. Hún greinir frá tjaldbúðamótmælum í Amsterdam, Almere og Haag og boðar landsmótmæli á Dam torgi í Amsterdam á morgun, 10. október. Krafist er lægri leigu, aukins húsnæðisöryggis og aðgerða gegn heimilisleysi.
Nemendur í Frakklandi og Belgíu
Í Frakklandi hafa framhaldsskólanemar mótmælt kennaraskorti, yfirfullum bekkjum og slæmu skólahúsnæði þó svo að þau mótmæli minni nú meira á stjórnlausar óeirðir, en hundruð þúsunda hafa tekið þátt og sums staðar verið hörð átök við lögreglu.
Í Belgíu hafa nemendur einnig farið út á götur vegna skólamála, meðal annars hækkandi námskostnaðar og aðbúnaðar. Nemendur í Liège segja að mótmælin í Frakklandi hafi veitt þeim innblástur og sumir séu í sambandi við franska jafnaldra sína.
Þar er jafnframt mótmælt dýrtíð og aðhaldsaðgerðum stjórnvalda. Um 30.000 komu saman í Brussel í dag, 9. október, samkvæmt lögreglu. Átök brutust út við aðaljárnbrautarstöðina en lögregla og verkalýðsleiðtogar segja óeirðaseggina hafa verið ótengda skipulögðu mótmælagöngunni.

Innflytjendamál, hernaðaruppbygging og spilling
Á Englandi komu mótmælendur saman í Gosport síðastliðinn sunnudag vegna komu innflytjenda yfir Ermarsund. Tólf voru handteknir eftir átök. Í Hollandi hafa einnig verið mótmæli gegn móttöku hælisleitenda, meðal annars í Kesteren í september.
Önnur ágreiningsefni hafa rekið fólk út á götur annars staðar. Í Þýskalandi mótmæltu þúsundir hernaðaruppbyggingu og herskyldu í Berlín og Stuttgart 3. október. Í Albaníu var mótmælt fyrir utan þingið í gær vegna fyrirhugaðra sveitarfélagasameininga.

Í Serbíu hefur langvarandi mótmælahreyfing gegn spillingu og stjórnvöldum þróast í pólitískt afl. Nemendahreyfingin hefur nú boðið fram lista fyrir komandi þingkosningar.

Bændur og launafólk boða frekari aðgerðir
Á Írlandi hefur verið mótmælt húsnæðisvanda og framfærslukostnaði. Þar mótmæltu alifuglabændur einnig í síðustu viku notkun innflutts hráefnis á veitingastað í Dublin.

Á Spáni tilkynntu þrjú bændasamtök í dag að þau boði sameiginlega dráttarvéla“göngu“ í Madríd 28. október. Þau krefjast aðgerða vegna hækkandi framleiðslukostnaðar, lélegrar afkomu og samkeppni frá innfluttum vörum.
Á Ítalíu var almennt verkfall boðað 2. október vegna meðal annars eldsneytisverðs, matarverðs, skatta og launa. Annað almennt verkfall er boðað 30. október.