Nýtt fegurðarskyn Íslendinga

Nýtt fegurðarskyn Íslendinga

Nýtt fegurðarskyn Íslendinga

Nýtt fegurðarskyn Íslendinga

Spurn­ing­ar vakna um skil­grein­ingu lyk­il­hug­taka sem varða mestu verð­mæti og mik­il­væg­asta verk­efni Ís­lend­inga.

Umhverfisráðherra í ríkisstjórn sem hefur beitt fyrir sig slagorðinu „ræsum vélarnar“, lýsti því yfir á dögunum að sér þættu vindmyllur fallegar. Hann hvatti Íslendinga til að aðlaga fegurðarskyn sitt að slíkum mannvirkjum. 

Samkvæmt erlendum viðmiðum getur ein vindmylla sést á svæði í 45 kílómetra radíus. Það jafngildir 6 prósentum af heildarlandsvæði Íslands fyrir eina vindmyllu án fyrirstöðu.

Nú þegar eru fjölmörg vindorkuverkefni á teikniborðinu. Sum eru komin lengra. Orkuveitan hefur rutt vegarslóða að 120 metra háu tilraunamastri skammt frá Henglinum vegna vindorkuvers sem myndi sjást frá Reykjavík og næði allt að 210 metra hæð. 

Einkafyrirtækið Qair vinnur að því að fá leyfi til að setja upp 30 vindmyllur, allt að 200 metra háar, á Melrakkasléttu sem myndi sjást frá Kópaskeri að Raufarhöfn, nánast af öllu svæðinu sem telst eitt stærsta undirlendi Íslands.

Annað einkafyrirtæki vill reisa 70 vindmyllur á Langanesi, í 3,5 kílómetra fjarlægð frá Þórshöfn, og er komið með leyfi fyrir tilraunamöstrum. Það veltur síðan á sveitarfélögum, umhverfismati og á ráðherranum, sem leggur tillögu fyrir Alþingi.

Í nýjum lögum um vindorkuver var lögð sérstök áhersla á að byggja vindorkuver á þegar röskuðum svæðum. Umhverfisráðherra tók þó sérstaka ákvörðun um að setja vindmyllugarð einkafyrirtækis við Garpsdal í nýtingarflokk, þótt hann liggi að óbyggðum víðernum. Virkjunin „mun skerða ósnortin víðerni og rýra verndargildi landslags“, sagði í áliti Náttúrufræðistofnunar. Þetta var í fyrsta skipti sem ráðherra færir virkjanakost yfir í orkunýtingarflokk, en verkefnastjórn rammaáætlunar hafði sett hann í biðflokk.

Víðerni eru skilgreind í 5 kílómetra fjarlægð frá mannvirkjum, en vindmyllur sjást hins vegar mun lengra að. Vegaslóði hefur allt önnur og minni áhrif á upplifun af víðerni heldur en vindmylla sem teygir sig allt upp í 210 metra hæð.

Fegurð vindmyllanna

Jóhann Páll Jóhannsson orku- og umhverfisráðherra var ásamt Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra viðstaddur vígslu fyrsta vindorkugarðs landsins sem er á vegum Landsvirkjunar við Vaðöldu.

„Ræsið vélarnar!“ fyrirskipaði Daði Már.

Umhverfisráðherrann gekk þó lengra. Í viðtali eftir ræsinguna viðurkenndi hann að mannvirkin væru ágeng og að mikilvægt væri að gæta að umhverfisáhrifum og sátt við nærsamfélag, en sagði svo: „Mér finnst þau reyndar mjög falleg og tignarleg.“

Þá sagði hann vindorkuver bjarga heiminum, ásamt sólarorku, og lagði í því ljósi til að Íslendingar myndu aðlagast mannvirkjunum. „Við þurfum líka bara svolítið að læra að meta þetta og laga fegurðarskynið okkar að orkuskiptabyltingunni,“ sagði hann.

Fegurðin í mannvirkjunum

Fegurðarmat er hluti af lögbundnum en óljósum viðmiðum í uppbyggingu, þótt erfitt sé að lögbinda matskennda fegurð. Í byggingarreglugerð er krafa um að „gæði byggingarlistar“ séu höfð að leiðarljósi við „útlit, efnisval og litaval“. Í skipulagslögum er kveðið á um að deiliskipulag sveitarfélaga geti sett skilmála um þakform, hæð, efnisval og liti.

Þegar reist er opinber bygging er lögbundið að minnst eitt prósent af byggingarkostnaðinum renni til kaupa listaverka í henni og umhverfi hennar. Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Jón Gunnarsson, Diljá Mist Einarsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson, lögðu fram frumvarp í september um að afnema þessa skyldu. Þingmennirnir nefna sem dæmi að í nýja Landspítalanum þurfi að kaupa listaverk fyrir 2,1 milljarð króna, miðað við byggingarkostnaðinn.

Rök þeirra eru í fyrsta lagi að listin sé án gagns, að „listaverkin hafa hvorki áhrif á notkunarmöguleika byggingarinnar né þá starfsemi sem byggingin hýsir“.

Svo er það spurningin um hvað sé fallegt.

„Í öðru lagi eru gæði listaverka eingöngu byggð á huglægu mati. Fagurfræðilegt mat er alltaf háð persónulegri skoðun hvers og eins og því ómögulegt að slá því föstu að tiltekið listaverk sé betra eða fegurra en önnur“, segir í frumvarpinu, sem er nú lagt fram í fimmta sinn.

Fegurðin í náttúrunni

Heil fræðigrein, fagurfræði, er tileinkuð eðli fegurðar. Tvö sjónarmið togast á, að hvaða marki fegurð er afstæð og hversu mikið af henni er algilt. Sögulega hefur sú umræða gjarnan snúið að fegurð kvenna, sem spannaði allt frá Venus von Willendorf til Venus de Milo. Með rómantísku bylgjunni eftir iðnbyltinguna varð sú hugmynd ráðandi að náttúran væri falleg, en áður var hún í meira mæli talin sjálfgefin.

Þegar ný mannvirki eru reist í náttúru utan byggðar eru gerðar kröfur um að gæta þess „að þau falli sem best að svipmóti lands“. Þetta gildir þegar firðir eru þveraðir með grjótruðningi, verksmiðjur reistar og virkjanir settar upp.

Ráðherra getur friðlýst svæði, landslag eða náttúruvætti „sökum fegurðar“.

Það leiðir aftur að spurningunni: Hvað er fegurð?

Rökin og fegurðin

Fegurðarskyn er ekki röklegt. Tilvist okkar er ekki heldur rökleg. Það hvort við viðhöldum íslenskri menningu og tungumáli er hvorki rökleg né nauðsynleg niðurstaða. Allt þetta hefur með rætur að gera og sjálfsmynd okkar sem vex upp úr þeim „allt eins og blómstrið eina“.

Ein leið til að horfa á íslensku rótina er að hún liggi í óspilltri náttúru. Skilgreiningin á óspilltri náttúru er að hún sé víðernin, landsvæði án uppbyggingar, án innviða. Þar er „ræsum vélarnar“, eins mikilvægt og það kann að vera í réttu samhengi, stærsta ógnin. Þar sem orðið „vélar“ er, í samræmi við orðsifjarnar, svik.

Íslensk náttúra er í þessum skilningi samhengi lífs þjóðarinnar. Við getum vel ímyndað okkur að þetta samhengi breytist. Um tveir þriðju þjóðarinnar býr á litlum bletti landsins á höfuðborgarsvæðinu og tæplega 80 prósent á suðvesturhorninu frá Akranesi að Selfossi. Íslendingar geta því aðlagast því að verða óuppnumdir af víðernum. En kynslóðir munu ekki vita hverju þær misstu af.

Náttúra án málsvara

Enginn sérstaklega náttúruverndarsinnaður stjórnmálaflokkur er á Alþingi og markmið núverandi ríkisstjórnar snúa helst að því að gera orkuöflun skilvirkari og skilyrðin skýrari, þótt eitt atriðið í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar hafi snúist um að „ráðast í aðgerðir til að vernda hafsvæði og ósnortin víðerni“.

Sjálfstæðismaðurinn Guðlaugur Þór Þórðarson, sem varð umhverfisráðherra nokkru eftir að formaður Vinstri grænna fór í forsetaframboð og gerði Bjarna Benediktsson að forsætisráðherra, hafði lagt drög að því að veita vindmyllum flýtimeðferð í „röskuðu“ landi. Þessu breytti ríkisstjórnin með lagabreytingu á Alþingi sem setur uppbyggingu vindmylla meiri hömlur, þannig að hún eigi að fara fram á „örfáum afmörkuðum svæðum í sátt við náttúru og nærsamfélag“. Nú eru fjölmargir aðilar þó með áform um að byggja upp vindmyllur víða um landið.

Stjórnvöld settu ramma utan um vindmyllur með frumvarpi á Alþingi. Þar kom fram að horft væri til þess „hvort virkjunarhugmyndin sé að öðru leyti á röskuðu svæði, það er svæði þar sem landnotkun eða mannleg umsvif hafa breytt landi frá upprunalegu náttúrulegu ástandi þess“. „Raskað svæði“ er matskennt og býður upp á að ein röskun ryðji brautina fyrir aðra.

Einn þeirra sem vilja afnema eins prósents regluna um útgjöld til lista í opinberum byggingum, Njáll Trausti Friðbertsson, hefur barist fyrir því að nýr vegur verði lagður yfir Kjöl af einkaaðilum sem myndu rukka fyrir aðgang.

Upphækkuð hraðbraut yfir Kjöl og Sprengisand, sem sumir þingmenn hafa barist fyrir, telst líklega falla að „svipmóti landslags“, samkvæmt laganna hljóðan, en allir sem farið hafa leiðirnar og séð þær vita að upphækkaður þjóðvegur myndi breyta þeim. Þetta yrðu ekki víðerni lengur í sama skilningi.

Algild fegurð

Þegar ferðamenn eru spurðir hvers vegna þeir velja að koma til Íslands svara 86 prósent því að náttúra Íslands sé ástæðan. Þegar þeir voru spurðir nánar fyrir tíu árum nefndu langflestir óspillta og ósnerta náttúru, landslag og óbyggðir. Þeir eru ekki að koma fyrir mannvirkin, heldur til að forðast þau.

Vísindarannsóknir hafa undirbyggt rómantísku bylgjuna sem reis upp úr rofinu milli okkar og náttúrunnar og í manngerðu umhverfi nútímans.

Síðari tíma rannsóknir hafa sýnt fram á að sjúklingar á spítala sem dvelja í herbergi með útsýni yfir gróður fá skjótari bata en þeir sem dvelja við steinvegg. Skynjun á náttúru dregur úr streituviðbrögðum.

Fegurðin er því ekki afstæðari en svo að finna má algildi í hrifningu mannfólks af ósnortinni náttúru. Hverjum þykir sinn fugl fagur, en flestum þykja líklega fuglar almennt fallegir.

Fegurðin er fallvölt. Þegar við „manngerum“ umhverfið með framkvæmdum færum við það langt frá mannlegum skala. Manngervingin hefur mismikil áhrif eftir fjárhag fólks. Fjársterkara fólki verður eftirlátið fallegt, ósnortið umhverfi á meðan þau sem hafa minna fá minna pláss og meiri nálægð við stór mannvirki, sem krefjast aðlögunar fegurðarskyns.

Reynslan í Noregi hefur leitt til fallandi stuðnings við vindorkuver. Einn af hverjum þremur Norðmönnum styður fjölgun vindorkuvera, en 44 prósent studdu þau árið 2023. Til samanburðar styðja mun fleiri, eða 54 prósent, að stofnuð verði kjarnorkuver.

Fegurðarskyn trumpismans

Í viðtali eftir að fyrstu íslensku vindmyllurnar í Vaðöldu voru ræstar gekkst umhverfisráðherrann við því að þær væru umdeildar en sagði að sér „leiddist þegar trumpísk orðræða um vindorku væri flutt til Íslands“.

Þetta er sérstaklega óviðeigandi vegna þess að trumpismanum fylgir skýr skóli um fegurðarmat. Innan hans er dýrkun á manngerðum inngripum í útlit kvenna, skrautstíll, gullhúðun og aðdáun á ýktri stærð sem brýtur upp hefðbundið jafnvægi, eins og sjá má í nýjum veislusal Hvíta hússins og fyrirhuguðum sigurboga í Washington.

Trumpisminn hins vegar felur ekki í sér vernd á ósnortinni náttúru, heldur afnám verndar og iðnvæðingu innan þjóðgarða eða friðlýstra svæða.

Að tengja andstæðinga vindmylla í íslenskri náttúru við trumpisma með beinum eða óbeinum hætti er þannig ósanngirni og alger öfugmæli.

Umhverfisráðherrum Íslands er eins og öðrum frjálst að sjá fegurð í vindmyllum. En við byggingu þeirra verður öðrum ófrjálst að upplifa óspillta náttúru á sama svæði og sjá ósnortið landslag í sjóndeildarhringnum.

Íslendingar hafa það hlutverk að gæta ósnortinnar náttúru, sem á enga rödd en margir geta hagnast á að raska. Að uppræta skynbragð á fegurð víðerna er afdrifaríkari aðgerð en að reisa vindmyllur. Til þess að rækja hlutverkið þarf að forðast að valda röskun á skynjuninni sjálfri og matinu á því hvað telst fallegt. 

#fegurðarskyn #nýtt #íslendinga


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27415/nytt-fegurdarskyn-islendinga/

📰 Aðrar fréttir

Ísraelskum ferða­mönnum mis­munað á veitinga­stað vegna upp­runa - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Ísraelskum ferða­mönnum mis­munað á veitinga­stað vegna upp­runa - Vísir
Kærunefndin komst að því að eigandi veitingastaðarins braut gegn lögum um jafna meðferð utan vinnumarkaðar með því að neita ísraelskum manni og maka h...
Svarar loksins spurningunni á allra vörum um nektarsenuna í Gone Girl
📅 09.10.2026 👁️ 1
Svarar loksins spurningunni á allra vörum um nektarsenuna í Gone Girl
Leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck hefur nú loks svarað spurningunni á allra vörum um nektarsenu í kvikmyndinni Gone Girl. Þar mátti sjá persónuna ...
Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína er­lendis - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína er­lendis - Vísir
Dótturinni hafði verið vísað til meðferðar á sjúkrahúsinu og Sjúkratryggingar greitt fyrir hana. Faðirinn taldi eftirliti íslenskra yfirvalda með meðf...
Þórður Snær segir að þjóðinni hafi verið seld lygi um fríverslunarsamning við Bandaríkin – „Aldrei láta plata ykkur aftur“
📅 09.10.2026 👁️ 1
Þórður Snær segir að þjóðinni hafi verið seld lygi um fríverslunarsamning við Bandaríkin – „Aldrei láta plata ykkur aftur“
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, segir að stjórnarandstaðan, og sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn, hafi selt þjóðinni ...
Fólk getur prentað sína eigin „Appelsínugulu plágu“
📅 09.10.2026 👁️ 1
Fólk getur prentað sína eigin „Appelsínugulu plágu“
Danski listamaðurinn Jens Galschiøt, sem hannaði listaverkið „Appelsínugula plágan“ hefur gefið út líkan fyrir þrívíddarprentun verksins. Líkanið er ó...
Athafnamaðurinn látinn laus en settur í farbann
📅 09.10.2026 👁️ 1
Athafnamaðurinn látinn laus en settur í farbann
Ekki var krafist frekara gæsluvarðhalds yfir athafnamanni á sextugsaldri sem handtekinn var við komu til landsins frá Portúgal þann 4. október.Þess í ...
Segir sáttina kosta ríkis­sjóð 1,6 milljarða til við­bótar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Segir sáttina kosta ríkis­sjóð 1,6 milljarða til við­bótar - Vísir
Kristrún segir stærsta muninn á aðgerðunum nú og því sem síðustu ríkisstjórnir hafi gert vera að útgjöldin séu ekki aðalatriðið heldur útfærsla og afm...
Skólum lokað eftir á­rásir og tíu hand­teknir vegna hótana - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Skólum lokað eftir á­rásir og tíu hand­teknir vegna hótana - Vísir
Í gær (fimmtudag) myrti fimmtán ára strákur húsvörð í skóla nærri Wyszków. Hann var vopnaður hníf og særði tvo til viðbótar, þar á meðal skólastjórann...
„Svo líða nokkur ár og þá þarf aftur að leggja á nýjan skatt“
📅 09.10.2026 👁️ 0
„Svo líða nokkur ár og þá þarf aftur að leggja á nýjan skatt“
Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum við frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt náttúru- og innviðagjald rann út 7. október. Alls bárust 35...
Mótmælaalda fer yfir Evrópu – Óánægja með húsnæði, dýrtíð og stefnu stjórnvalda
📅 09.10.2026 👁️ 0
Mótmælaalda fer yfir Evrópu – Óánægja með húsnæði, dýrtíð og stefnu stjórnvalda
Leigjendur tjalda á torgum, nemendur loka aðgangi að skólum og tugþúsundir ganga út á götur. Mótmæli hafa undanfarna vikur sett svip sinn á fjölda Evr...
Athafnamaður úr gæsluvarðhaldi í farbann
📅 09.10.2026 👁️ 0
Athafnamaður úr gæsluvarðhaldi í farbann
Athafnamaður á sextugsaldri er laus úr gæsluvarðhaldi sem hann var hnepptur í á mánudag. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna farbann.Maðurinn...
Einn slasaður eftir harðan árekstur rétt fyrir utan Akureyri
📅 09.10.2026 👁️ 0
Einn slasaður eftir harðan árekstur rétt fyrir utan Akureyri
Einn var fluttur á sjúkrahús eftir tveggja bíla árekstur við Hlíðarbæ, á þjóðveginum, rétt norðan við Akureyri fyrir skemmstu.Sex farþegar voru í bíl ...
Kannast ekkert við brot og munu að­stoða við rann­sókn - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Kannast ekkert við brot og munu að­stoða við rann­sókn - Vísir
Líkt og fjallað hefur verið um tilkynnti Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar og fleiri fyrirtækja, í morgun að Samkeppniseftirlitið hefði ráðist í húsleit ...
Úr­skurðaður í far­bann - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Úr­skurðaður í far­bann - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var síðastliðinn mánudag úrskurðaður í gæsluvarðhald í þágu rannsóknar m...
Stjórnendur Beru og Ölgerðarinnar kannast ekki við brot
📅 09.10.2026 👁️ 1
Stjórnendur Beru og Ölgerðarinnar kannast ekki við brot
Forsvarsmenn Beru og Ölgerðarinnar segjast ekki kannast við að fyrirtækið hafi misnotað markaðráðandi stöðu sína á drykkjarvörumarkaði. Þeir segja að ...
Skúli Mogensen svarar skrifum Sifjar um baðlón fullum hálsi - „Mér hefur aldrei dottið í hug að kvarta yfir því“
📅 09.10.2026 👁️ 1
Skúli Mogensen svarar skrifum Sifjar um baðlón fullum hálsi - „Mér hefur aldrei dottið í hug að kvarta yfir því“
Ríkisstjórnin leggur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár að baðlónum og gufuböðum verði gert að greiða hefðbundinn virðisaukaskatt, 24%, frekar en...
Fékk tilboð frá iðnaðarmanni og rak upp stór augu – „Hvað finnst ykkur um það?“
📅 09.10.2026 👁️ 1
Fékk tilboð frá iðnaðarmanni og rak upp stór augu – „Hvað finnst ykkur um það?“
Líflegar umræður hafa skapast á Facebook-síðunni Vertu á verði – eftirlit með verðlagi eftir að einn meðlimur hópsins greindi frá því að hafa fengið t...
Viðskiptavinir Íslandsbanka varaðir við – Ekki falla í þessa gildru
📅 09.10.2026 👁️ 1
Viðskiptavinir Íslandsbanka varaðir við – Ekki falla í þessa gildru
Íslandsbanka hafa borist tilkynningar um svikatilraunir þar sem hringt er í viðskiptavini bankans og hringjendur gefa sig út fyrir að starfa hjá banka...
Hotels asked to dim lights to help save young seabirds in Fuerteventura
📅 09.10.2026 👁️ 1
Hotels asked to dim lights to help save young seabirds in Fuerteventura
Hotels, businesses and residents across Fuerteventura are being asked to reduce unnecessary outdoor lighting during October and November to help prote...
Í beinni: Gervigreind og framtíðin sem við veljum
📅 09.10.2026 👁️ 1
Í beinni: Gervigreind og framtíðin sem við veljum
Gervigreindin og ákvarðanataka framtíðarinnar eru til umfjöllunar á sérstökum viðburði Hringborði Norðurslóða, Arctic Circle, í dag.The Humanity Dilem...
Fury vs Joshua: Tickets priced up to £13,000 for all-British showdown sell out in one hour
📅 09.10.2026 👁️ 0
Fury vs Joshua: Tickets priced up to £13,000 for all-British showdown sell out in one hour
Tickets for Tyson Fury and Anthony Joshua's fight at Cardiff's Principality Stadium sells out in just one hour.
Anthropic bans users from being 'cruel' to its AI systems
📅 09.10.2026 👁️ 1
Anthropic bans users from being 'cruel' to its AI systems
The firm said users can no longer engage in "sustained and needless" abusive behaviour towards the tech.
Bæði formaður VR og Eflingar hafi rétt fyrir sér
📅 09.10.2026 👁️ 1
Bæði formaður VR og Eflingar hafi rétt fyrir sér
Formenn Eflingar og Starfsgreinasambandsins segja ekkert nýtt í aðgerðarpakka stjórnvalda til að liðka fyrir samningum, sem var kynntur í gær. Þeir sa...
King pays Andrew's £1.5m repair bill on Royal Lodge
📅 09.10.2026 👁️ 1
King pays Andrew's £1.5m repair bill on Royal Lodge
Andrew Mountbatten-Windsor was charged £1.5m in repair and restoration costs after surrendering the lease on the 30-room mansion.
Andrew fær 302 þúsund pund fyrir að yfirgefa setrið sitt í Windsor
📅 09.10.2026 👁️ 1
Andrew fær 302 þúsund pund fyrir að yfirgefa setrið sitt í Windsor
Andrew fær 302 þúsund pund fyrir að yfirgefa setrið sitt í Windsor Andrew Mount­batten-Windsor, sem einu sinni var prins, fær bæt­ur fyr­ir að þurfa a...
New rules to ban smoking, loud music and camping on beaches in Tenerife
📅 09.10.2026 👁️ 1
New rules to ban smoking, loud music and camping on beaches in Tenerife
New regulations banning smoking, overnight stays, and several other activities at beaches and natural swimming pools have been approved in La Laguna, ...
Bað um að starfsfólk Hjálparsímans kæmi í jarðarförina
📅 09.10.2026 👁️ 1
Bað um að starfsfólk Hjálparsímans kæmi í jarðarförina
Einmanaleiki hefur aukist undanfarna áratugi. Hann hefur áhrif á fólk á öllum aldri og alls staðar í samfélaginu.Vika einmanaleikans er nú haldin í an...
Samherji gæti hafið fiskþurrkun á nýjan leik á bráðabirgðaleyfi
📅 09.10.2026 👁️ 1
Samherji gæti hafið fiskþurrkun á nýjan leik á bráðabirgðaleyfi
Frestur til að gera athugasemdir við áform Umhverfis- og orkustofnunar um að veita Samherja bráðabirgðastarfsleyfi til fiskþurrkunar á Laugum í Reykja...
Pretty Little Liars stjarna alblóðug eftir vopnað rán: „Þeir tóku úrið mitt - Fjandinn hafi það“
📅 09.10.2026 👁️ 3
Pretty Little Liars stjarna alblóðug eftir vopnað rán: „Þeir tóku úrið mitt - Fjandinn hafi það“
Bandaríski leikarinn Keegan Allen, sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Pretty Little Liars, varð fyrir vopnuðu ráni í vesturhlut...
Af­skipti for­manns Eflingar séu með ó­líkindum - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Af­skipti for­manns Eflingar séu með ó­líkindum - Vísir
Eftir að samkomulag VR og SA náðist í gær sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, að fjölmiðlasirkus formanns VR hefði ekki skil...
Þess vegna fór Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá Ölgerðinni í morgun
📅 09.10.2026 👁️ 3
Þess vegna fór Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá Ölgerðinni í morgun
Samkeppniseftirlitið framkvæmdi í morgun húsleit í höfuðstöðvum Beru hf., móðurfélagi Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf.Bera greindi frá málinu...
Fjöru­tíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 0
Fjöru­tíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ - Vísir
Fréttamaðurinn Tómas Arnar Þorláksson leit bak við tjöldin við gerð afmælisþáttarins og ræddi við nokkra vel valda. Þeirra á meðal var auðvitað Vala M...
Í beinni frá höfuð­stöðvum Öl­gerðarinnar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Í beinni frá höfuð­stöðvum Öl­gerðarinnar - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12 og við verðum í beinni frá höfuðstöðvunum. Formaður VR segir skrýtið að standa í meti...
France promises 3,000 extra teachers in bid to calm student protests
📅 09.10.2026 👁️ 3
France promises 3,000 extra teachers in bid to calm student protests
Education minister Edouard Geffray makes the offer after another day of sometimes violent demonstrations by high-school students.
Nóbelsnefndin segist ekki taka afstöðu til ásakana um þjóðarmorð Ísraela
📅 09.10.2026 👁️ 3
Nóbelsnefndin segist ekki taka afstöðu til ásakana um þjóðarmorð Ísraela
Nóbelsnefndin segist ekki taka afstöðu til ásakana um þjóðarmorð Ísraela Eft­ir að suð­urafríski dóm­ar­inn Navi Pillay hlaut frið­ar­verð­laun­in sag...
Helsti herbloggari Rúss­lands hand­tekinn í Svart­fjalla­landi - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Helsti herbloggari Rúss­lands hand­tekinn í Svart­fjalla­landi - Vísir
Auk Zvinchuk var eiginkona hans handtekin og þrír aðrir, samkvæmt miðlinum Vijesti, sem er frá Svartfjallalandi. Þau voru handtekin í bænum Risan og v...
'Deeply personal moment': Watch Sagal Abdi-Wali's by-election victory speech
📅 09.10.2026 👁️ 3
'Deeply personal moment': Watch Sagal Abdi-Wali's by-election victory speech
Labour beat the Green Party with 45% of the vote in the Holborn and St Pancras by-election.
VG segir forgangsröðun fjárlaganna „kolranga gagnvart almenningi“
📅 09.10.2026 👁️ 3
VG segir forgangsröðun fjárlaganna „kolranga gagnvart almenningi“
VG segir forgangsröðun fjárlaganna „kolranga gagnvart almenningi“ Vinstri græn vilja að rík­is­stjórn­in end­ur­skoði að­halds­að­gerð­ir í fjár­laga­...
Sameinuðu þjóðirnar segja erfiðan vetur blasa við íbúum Gaza
📅 09.10.2026 👁️ 3
Sameinuðu þjóðirnar segja erfiðan vetur blasa við íbúum Gaza
Hið minnsta 1,8 af um tveimur milljónum íbúa Gaza bíður erfiður vetur án fullnægjandi húsaskjóls þegar fjórði vetur harkalegra aðgerða og takmarkana Í...
Jón Óttar fagnar 40 ára afmæli Stöðvar 2 og sendir pillu á stjórnendur Sýnar
📅 09.10.2026 👁️ 3
Jón Óttar fagnar 40 ára afmæli Stöðvar 2 og sendir pillu á stjórnendur Sýnar
Jón Óttar Ragnarsson, fyrsti sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, fagnar í dag 40 ára afmæli stöðvarinnar, sem heitir í dag Sýn. Fyrir þá sem ekki þekkja hófust...
Allt á annan endann þegar sveitarstjórnarmaður tilbað djöfulinn á fundi – „Heill þér Satan“
📅 09.10.2026 👁️ 3
Allt á annan endann þegar sveitarstjórnarmaður tilbað djöfulinn á fundi – „Heill þér Satan“
Óhætt er að segja að allt hafi farið á annan endann eftir að fyrrverandi sveitarstjórnarmaður í bænum Ottumwa City í Iowa tilbað sjálfan myrkrahöfðing...
Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá móðurfélagi Ölgerðarinnar
📅 09.10.2026 👁️ 3
Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá móðurfélagi Ölgerðarinnar
Samkeppniseftirlitið hefur hafið húsleit hjá Beru hf., móðurfélagi Ölgerðarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.Í tilky...
Crazy Rich Asians TV show to reunite Constance Wu and Henry Golding
📅 09.10.2026 👁️ 3
Crazy Rich Asians TV show to reunite Constance Wu and Henry Golding
The show will pick up after the hit 2018 film, and will also star Michelle Yeoh and Ronny Chieng.
Alison Hammond: 'I thought I was having heart attack on air'
📅 09.10.2026 👁️ 3
Alison Hammond: 'I thought I was having heart attack on air'
The host says a health scare was "probably one of the most scariest things I've ever been through".
Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira - Vísir
Iðnmark framleiðir meðal annars Stjörnupopp og Stjörnusnakk. Sindri Sindrason fékk að fylgjast með ferlinu frá því að grunnur hússins var klár þar til...
Grunur um sex ára markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar
📅 09.10.2026 👁️ 3
Grunur um sex ára markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar
Samkeppniseftirlitið hefur ráðist í húsleit hjá Beru vegna gruns um að dótturfélag þess, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, hafi gerst sekt um markaðsmisn...
Rannsaka möguleg brot Ölgerðarinnar á sex ára tímabili
📅 09.10.2026 👁️ 0
Rannsaka möguleg brot Ölgerðarinnar á sex ára tímabili
Samkeppniseftirlitið hefur ráðist í húsleit hjá Beru vegna gruns um að dótturfélag þess, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, hafi gerst sekt um markaðsmisn...
Ástar­bréf til ís­lenskra költmynda - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Ástar­bréf til ís­lenskra költmynda - Vísir
„Fokkamérupp“ er fjórða lagið af Helga á Prikinu, gestalistamannaplötu (e. feature album) tónlistarmannsins Orra Starrasonar, sem gengur undir listama...
EES-flopp Viðreisnar
📅 09.10.2026 👁️ 3
EES-flopp Viðreisnar
EES-flopp Viðreisnar Fréttin9. október 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Þorgerður Katrín utan...
Húsleit hjá móðurfélagi Ölgerðarinnar
📅 09.10.2026 👁️ 4
Húsleit hjá móðurfélagi Ölgerðarinnar
Húsleit hjá móðurfélagi Ölgerðarinnar Sam­keppnis­eft­ir­lit­ið rann­sak­ar ætl­uð brot Öl­gerð­ar­inn­ar á banni við mis­notk­un á mark­aðs­ráð­andi ...