Samkeppniseftirlitið hefur ráðist í húsleit hjá Beru vegna gruns um að dótturfélag þess, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, hafi gerst sekt um markaðsmisnotkun. Rannsóknin beinist að meintum brotum sem eiga að hafa verið framin undanfarin sex ár.
Kveikur hefur verið að rannsaka þessi mál síðustu mánuði og verður það til umfjöllunar í þættinum á þriðjudag.
Fréttamenn og tökumaður RÚV hafa verið á vettvangi í morgun. Þar er allt með kyrrum kjörum og engin ummerki um húsleitina.
Fréttastofa hefur óskað eftir viðbrögðum forsvarsmanna Beru og Samkeppniseftirlitsins en þeir hafa ekki veitt viðtöl.
Húsleit vegna gruns um markaðsmisnotkun
Bera tilkynnti Kauphöllinni um húsleitina á ellefta tímanum í dag. Þar sagði að Samkeppniseftirlitið hefði hafið húsleit og tilkynnt félaginu að það hefði hafið mál vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar.
Rannsóknin byggir, samkvæmt tilkynningu Beru, á ákvæðum samkeppnislaga sem banna markaðsráðandi fyrirtækjum að misnota aðstöðu sína. Rannsóknin beinist að starfsemi Ölgerðarinnar á sex ára tímabili, frá 2020 til dagsins í dag.
Samkeppniseftirlitið fékk heimild Héraðsdóms Reykjavíkur til að ráðast í húsleit.
Reyna að afla og tryggja varðveislu gagna
Samkeppniseftirlitið sendi frá sér tilkynningu á tólfta tímanum. Þar segir að stofnunin hafi hafið rannsókn á háttsemi Beru, Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og öðrum tengdum félögum á drykkjarvörumarkaði. Sú rannsókn snýr að því hvort Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu og hvort hún hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína.
Markmiðið með húsleitinni var að afla og tryggja varðveislu gagna sem kunna að hafa þýðingu fyrir rannsóknina.
Verð hlutabréfa í Beru lækkaði eftir að tilkynnt var um húsleitina, fór úr genginu 14,70 í 14,00 en hækkaði síðan í 14,40. Það er sama verð og við opnun markaðar í morgun því hlutabréfaverð hafði farið úr genginu 14,40 í 15,00 áður en það seig nokkuð fram að tilkynningunni og féll á.
Samkeppniseftirlitið hefur notið aðstoðar starfsmanna héraðssaksóknara við húsleitina.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum úr tilkynningu Samkeppniseftirlitsins og upplýsingum um aðkomu starfsmanna héraðssaksóknara. Fyrirsögnin hefur verið uppfærð.