Andrew fær 302 þúsund pund fyrir að yfirgefa setrið sitt í Windsor
Andrew Mountbatten-Windsor, sem einu sinni var prins, fær bætur fyrir að þurfa að flytja burt af lóð Windsor-kastalans. Bæturnar voru dregnar frá 1,8 milljóna punda greiðslu vegna ólokinna viðgerða á Royal Lodge. Karl III. konungur neyddi bróður sinn til að flytja þaðan í fyrra og býr hann nú á Sandringham-landareign konungs.
Andrew, fyrrverandi prins Bretlands sem fallið hefur í ónáð, fékk 302 þúsund pund, jafnvirði um 48,8 milljóna króna, í bætur fyrir að láta af hendi leigurétt sinn að setri á Windsor-landareign konungsfjölskyldunnar. Þetta greindi félagið sem annast umsýslu konunglegra fasteigna frá í dag.
Andrew, sem ber nú nafnið Andrew Mountbatten-Windsor, var neyddur til að yfirgefa Royal Lodge, þar sem hann hafði búið um árabil, af bróður sínum, Karli III. konungi, í fyrra. Hann hefur síðan flutt í hús á Sandringham-landareign konungs í austurhluta Englands.
Crown Estate er sjálfstætt félag sem rekið er á viðskiptalegum forsendum, hefur umsjón með konunglegum fasteignum og skilar hagnaði til ríkisins. Í yfirlýsingu til AFP sagði félagið að Andrew hefði „látið af hendi leigurétt sinn“.
Þar sagði að hann hefði „að fullu rýmt“ húsnæðið og greitt 1,8 milljónir punda, jafnvirði um 291 milljónar króna, vegna viðgerða sem enn átti eftir að sinna.
Samkvæmt leigusamningnum gat …