Iðnmark framleiðir meðal annars Stjörnupopp og Stjörnusnakk.
Sindri Sindrason fékk að fylgjast með ferlinu frá því að grunnur hússins var klár þar til það var tilbúið en um var að ræða nokkurra ára ferli. Verkefnið byrjaði árið 2022 og kláraðist á þessu ári.
Í síðasta þætti af Heimsókn var verkefnið til umfjöllunar en Sigurjón sagði í þættinum að kostnaðaráætlunin væri um 150 milljónir. Seinna kom í ljós að húsið átti eftir að kosta meira. Þau hjónin búa í húsinu ásamt tveimur dætrum en báðar fengu þær eins konar svítu. Heimsókn er hægt að sjá í heild sinni inni á Sýn+.
Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti af Heimsókn.