Ríkisstjórnin leggur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár að baðlónum og gufuböðum verði gert að greiða hefðbundinn virðisaukaskatt, 24%, frekar en 11%. Tillagan hefur verið harðlega gagnrýnd af forsvarsmönnum baðlóna, Samtökum ferðaþjónustunnar og fleiri hagsmunaðilum ferðaþjónustunnar. Eigendur baðlóna óttast að hækkunin muni leiða til hærra verðs, dragi úr gestafjölda og hafi neikvæð áhrif á samkeppnisstöðu ferðaþjónustunna. Á samfélagsmiðlum og víðar hefur framgöngu ferðaþjónustunnar í málinu verið líkt við tilætlunarsemi, jafnvel frekju.
Skúli Mogensen svarar skrifum Sifjar um baðlón fullum hálsi - „Mér hefur aldrei dottið í hug að kvarta yfir því“