Almannaþjónustumiðlar á Norðurlöndum hafa samþykkt að vinna saman að því að styrkja varnir sínar og þanþol til að takast á við óvissu og ógnir.
Ríkisútvarpið, DR í Danmörku, NRK í Noregi, SVT, SR og UR í Svíþjóð og YLE í Finnlandi hafa undirritað Reykjavíkuryfirlýsinguna svokölluðu. Hún felur í sér samvinnu og samstarf við að koma efni og þjónustu fjölmiðlanna til skila; þar á meðal ábyrgri fréttamennsku, menningu og traustum upplýsingum. Þetta á við í krísum eða þegar alvarleg ógn steðjar að.
Samstarfið er þvert á landamæri en á að tryggja ritstjórnarlegt frelsi og taka mið af landslögum á hverjum stað.
Meðal þess sem fjölmiðlarnir ætla að gera er að deila hver með öðrum þekkingu, þjálfun og rannsóknaraðferðum til að sannreyna upplýsingar og sporna gegn upplýsingaóreiðu. Einnig á, eftir atvikum og í samræmi við lög, að deila þekkingu og aðferðum við að takast á við öryggisógnir með fjölmiðlum á víðari grundvelli til að efla þanþol geirans.
Almannaþjónustumiðlarnir ætla að kanna möguleika á því að þróa áætlanir sem geri einum miðli kleift að aðstoða annan við að halda uppi útsendingum og dreifingu efnis ef hann verður fyrir netárásum eða ef dreifikerfi miðilsins stöðvast af öðrum ástæðum. Markmiðið er að reyna að tryggja aðgang fólks að fréttum þrátt fyrir slík áföll.
Annað sem miðlarnir ætla að gera er að samræma eftir því sem hægt er, og í samræmi við landslög, áhættumat og varnir þegar kemur að dreifikerfi og framleiðslu. Almannaþjónustumiðlarnir vilja líka vinna saman að því að auka þanþol til að takast á við netárásir og önnur skemmdarverk sem kynnu að beinast gegn þeim.
Settur verður á fót sameiginlegur stýrihópur til að vinna að því að samræma, eftir því sem hægt er, undirbúning og viðbrögð við ógnum án þess þó að sá hópur hafi áhrif á ritstjórnarlegt sjálfstæði hvers miðils. Einnig er stefnt að því að standa að æfingum og skipulagningu til að efla eins og hægt er getu hvers og eins fjölmiðils til að bregðast við.
Í samþykktinni segir að frjálsir og sjálfstæðir fjölmiðlar séu nauðsynlegir lýðræðinu. Það sé skylda norrænna fjölmiðla sem starfa í almannaþágu að tryggja að þeir geti haldið áfram fréttaflutningi og að almenningur hafi aðgengi að þjónustu þeirra á hættustund.