EES-flopp Viðreisnar

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Þorgerður Katrín utanríkisráðherra og Viðreisn hugðust slá tvær flugur í einu höggi með frumvarpi um EES-samninginn kennt við bókun 35. Frumvarpið snýst um að laga- og regluverk EES gangi framar íslenskum lögum.
Í fyrsta lagi var hugmyndin að kljúfa stjórnarandstöðuna. Fyrirfram var vitað á Miðflokkurinn yrði alfarið andvígur frumvarpinu. Þorgerður Katrín og Viðreisn bjuggust við stuðningi frá Sjálfstæðisflokknum. ESB-sinni í Sjálfstæðisflokknum, Þórdís Kolbrún, hafði lagt frumvarpið fram í utanríkisráðherratíð sinni.
Í öðru lagi var ætlun utanríkisráðherra og Viðreisnar að ná vopnum sínum í Evrópumálum eftir ósigurinn í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB-umsókn í lok ágúst. Viðreisn á engin önnur mál til að marka sér pólitískan bás. Lítilfjörlegu sigur á alþingi í EES væri sárabót fyrir tapið í almennri kosningu um ESB. Svona eins og fótboltalið sem biður um vináttuleik gegn veikum andstæðingi eftir stórtap í deildarleik.
Þorgerður Katrín og Viðreisn höfðu töluvert fyrir málinu, létu meðal annars gera myndbönd til dreifingar á samfélagsmiðlum um mikilvægi frumvarpsins. Tiltækið sýnir ofmat Viðreisnar, og ESB-sinna almennt, á áhuga almennings á EES-samningnum. Í pólitísku samhengi var EES-samningurinn frá tíunda áratug síðustu aldar varnarleikur. Með samningnum var létt á þeim þrýstingi sem var á að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu. Varnarleikurinn heppnaðist. Ekkert varð af ESB-umsókn fyrr en eftir bankahrunið. Þjóðhollum tókst að skjóta niður umsókn vinstristjórnar Jóhönnu Sig. á árabilinu 2009-2012. Síðan spurðist ekkert til ESB-umsóknar fyrr en í mars í vor er ríkisstjórnin hleypti af stað sex mánaða innanlandsófriði sem lauk 29. ágúst með fullnaðarsigri þjóðhyggjumanna.
Til að draga enn úr áhuga almennings að púkka upp á EES-samninginn skellti Evrópusambandið tollum á íslenskt kísiljárn sem er klárt samningsbrot. Til hvers að halda upp á samning sem mótaðilinn þverbrýtur?
Þorgerður Katrín og Viðreisn mislesa almannarýmið. Enginn missir svefn yfir afdrifum EES-samningsins. Íslenskir embættismenn, hjá ESA, eftirlitsstofnun EFTA, ákváðu að draga Ísland fyrir EFTA-dómstólinn vegna bókunar 35. Ekki raskaði stefnan dauðaró ESB-samningsins í umræðunni hér á landi. Árni Páll hjá ESA, fyrrum ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sig., aðstoðar Þorgerði Katrínu og ESB-sinna að slá pólitískar keilur.
Náðarhöggið á tilraun Þorgerðar Katrínar og Viðreisnar að kljúfa stjórnarandstöðuna og ná frumkvæði í Evrópuumræðunni veitti Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins síðdegis á þriðjudag úr ræðustól alþingis.
Að bera ágreining undir þann dómstól [EFTA-dómstólinn] er ekki að grafa undan EES-samningnum, það er hluti af honum. Við eigum að standa við okkar skyldur en jafnframt standa fast á okkar réttindum og verja íslenska hagsmuni. Og eitt grundvallaratriði þarf alltaf að vera skýrt: Það er Alþingi Íslendinga sem setur íslensk lög. EES-reglur taka ekki sjálfkrafa gildi hér á landi. [feitletr. pv]
Formaður Sjálfstæðisflokksins tekur afgerandi afstöðu. Látum EFTA-dómstólinn kveða upp sinn úrskurð og metum stöðu okkar í framhaldi.
EES-samningurinn er barn síns tíma, eiginlega fríverslunarsamningur á sterum. Eftir að þjóðin hafnaði ESB-umsókninni er næsta skref að afbyggja EES. Íslenskt samfélag er ekki best rekið með reglugerðafargani frá Brussel.