Nóbelsnefndin segist ekki taka afstöðu til ásakana um þjóðarmorð Ísraela
Eftir að suðurafríski dómarinn Navi Pillay hlaut friðarverðlaunin sagði formaður norsku nefndarinnar að alþjóðlegir dómstólar ættu að skera úr um málið. Pillay fór fyrir rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna sem komst að þeirri niðurstöðu að þjóðarmorð hefði átt sér stað á Gaza.
Nóbelsnefndin sem útnefnir friðarverðlaunahafa segist ekki taka afstöðu til þess hvort Ísrael hafi framið þjóðarmorð á Gaza. Yfirlýsingin kom eftir að nefndin heiðraði suðurafríska dómarann Navi Pillay, sem fór fyrir rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna sem taldi ásakanirnar á rökum reistar.
„Þetta er skýrsla hennar, skýrsla nefndarinnar, og auðvitað berum við mikið traust til fagmennsku hennar og heilinda. En þetta er starf rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Jorgen Watne Frydnes, formaður norsku Nóbelsnefndarinnar, við AFP þegar hann var beðinn um að tjá sig.
Hann sagði að það væri alþjóðlegra dómstóla að skera úr um málið og lagði áherslu á að Nóbelsnefndin „er ekki dómstóllinn“.
Pillay fór fyrir óháðri alþjóðlegri rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna um hernumdu palestínsku svæðin. Nefndin talar ekki í nafni Sameinuðu þjóðanna og komst í fyrra að þeirri niðurstöðu að þjóðarmorð ætti sér stað á Gaza.
Ísrael hafnaði niðurstöðum skýrslunnar sem „brengluðum og röngum“. …