Forsvarsmenn Beru og Ölgerðarinnar segjast ekki kannast við að fyrirtækið hafi misnotað markaðráðandi stöðu sína á drykkjarvörumarkaði. Þeir segja að rannsókn Samkeppniseftirlitsins á meintum slíkum brotum hafi hafist eftir kvartanir frá keppinautum fyrirtækisins.
Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins.
Þar segir að húsleitin varði rannsókn eftirlitsins á meintum brotum Ölgerðarinnar um bann við misnotkun á markaðsráðandi söðu. Stjórnendur Beru og Ölgerðarinnar segjast ekki hafa neinar upplýsingar um að slík brot hafi átt sér stað í starfsemi félagsins.
Í tilkynningunni segir að rík áhersla sé lögð á fylgni við samkeppnisreglur í rekstri og að starfsfólk fái fræðslu um hvernig stór aðili á markaði þurfi að haga sér í samkeppni.
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins beinist að því hvort Bera, Ölgerðin og tengd fyrirtæki hafi markaðsráðandi stöðu á drykkjarvörumarkaði og hvort þau hafi misnotað þá stöðu.
Samkeppniseftirlitið gerði húsleit á skrifstofum Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, til að afla gagna og tryggja vörslu þeirra. Húsleitin var gerð að fenginni heimild Héraðsdóms Reykjavíkur. Samkeppniseftirlitið fékk aðstoð hjá héraðssaksóknara við húsleitina þar sem hann lagði til starfsmenn til leitarinnar.
Fréttin hefur verið uppfærð.