Í gær (fimmtudag) myrti fimmtán ára strákur húsvörð í skóla nærri Wyszków. Hann var vopnaður hníf og særði tvo til viðbótar, þar á meðal skólastjórann, áður en hann var stöðvaður. Pilturinn var með myndavél á höfðinu sem talið er að hann hafi ætlað að nota til að streyma frá árásinni á netinu, samkvæmt frétt pólska ríkisútvarpsins.
Degi áður, eða á miðvikudag, hafði nítján ára maður ráðist á hóp fólks í skóla í Ostrołęka. Hann særði níu áður en hann var handtekinn. Fyrr þann dag hafði lögreglan í Sierpc stöðvað táning sem grunaður er um að hafa ætlað sér að ráðast á fólk í skóla sínum.
Í kjölfarið er búið að handtaka tíu ungmenni til viðbótar og þar á meðal er sautján ára piltur sem talinn er bera ábyrgð á gervigreindarmyndbandi þar sem bárust hótanir um „blóðugan föstudag“. Þetta myndband er sagt hafa leitt til ólgu í Póllandi en yfirvöld segja að lokun skólanna tengist því ekki sérstaklega.
Lögregluþjónar voru í morgun sendir til um tíu þúsund skóla í Póllandi.
Hér að neðan má sjá stutta frétt TVP á ensku um stöðuna í Póllandi.
Police in Warsaw detained three teenage students over online threats to kill or harm others, as concerns grow following a series of violent incidents at schools in Poland’s Masovia region. The attacks over two days left one person dead and more than 10 injured. https://t.co/5QgWpfdhh3
— TVP World (@TVPWorld_com) October 9, 2026
Í frétt Reuters segir að handtökunum og lögregluþjónunum sé ætlað að sefa ótta fólks vegna árásanna og hótana um þennan blóðuga föstudag. Mikil umræða um þær hefur átt sér stað á samfélagsmiðlum í Póllandi, sem er sagt hafa ýtt undir óttann.
Reuters segir að umræðan hafi að miklu leyti snúist um einhvers konar áskorun sem hafi verið í dreifingu á netinu, þar sem ungmenni eru hvött til árása. Lögreglan segir að engin ummerki um slíkt hafi fundist.
Yfirvöld hafa varað við upplýsingaóreiðu í tengslum við árásirnar og samsæriskenningum sem hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Ráðherra sagði í viðtali í morgun að eðlilega fyndi fólk fyrir kvíða vegna árásanna en það benti ekkert til einhvers landslægs ástands eða samráðs milli árásarmanna.